Author: lensherra

Örverkasamkeppni fyrir ungt fólk

Febrúar er mánuður unga fólksins hjá Borgarleikhúsinu. Af því tilefni efnir Borgarleikhúsið til örleikritunarsamkeppni fyrir ungt fólk. Skorað er á fólk undir 25.ára og námsmenn  að prófa að nota leikhúsið sem farartæki fyrir skoðanir, tilfinningar og/eða hugsanir sínar. Vinningshafinn fær að launum árskort í leikhúsið fyrir tvo. Skiladagur verkanna er 7.mars frá 13:00-17:00  og verður þá boðið eru upp á kaffi, djús og með því í forsal leikhússins, þar sem tekið verður á móti hugmyndum og dómnefnd situr við lestur allan daginn.   Valið verður úr verkunum samdægurs og úrslitin kunngerð í lok dagskrárinnar, Leikhúsið og unga fólkið/Leikhús sem...

Sjá meira

Leikfélag Hveragerðis sextugt

Leikfélag Hveragerðis heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessar mundir. Í tilefni þess mun leikfélagið  frumsýna þann 24. febrúar n.k. rokkóperuna Jesus Christ Superstar eftir Tim Rice og Andrew Loyd  Webber.  Leikstjórar eru Jón Ingi Hákonarson og Laufey Brá Jónsdóttir.  Alls taka 17 leikarar þátt í sýningunni og fjögura manna rokkhljómsveit sér um undirleik.  Æfingar hófust 3. janúar og hafa gengið vel.  Í aðalhlutverkum eru Hafsteinn Þór Auðunsson, Þorgils Óttar Vilberg Baldursson og Halldóra Rut Bjarnadóttir. Sýningar eru í húsi leikfélagsins, Völundi, að Austurmörk 23.  Önnur sýning verður þann 28. febrúar, en þann dag er einmitt stofnunarafmæli...

Sjá meira

Aukasýningar í Borgarleikhúsinu

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukasýningum á Mein Kampf og Alveg brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu.   Báðar sýningarnar hafa gengið fyrir fullu húsi frá því sýningar hófust en nú hafa verið sýndar yfir 120 sýningar af Brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu og Mein Kampf er löngu komið yfir áætlaðan sýningarfjölda. “Það eina neikvæða við þetta er að við erum í vandræðum með að finna sýningardaga fyrir auksýningarnar, því það er svo mikið um að vera hjá okkur að það skortir sýningarkvöld, kannski við förum að sýna öll kvöld vikunnar eins og gert er í London” sagði Guðjón Pedersen....

Sjá meira

Leiklist óskast!

Búið er að gera góða leiklistaraðstöðu í menningarmiðstöðinni Þjórsárveri í Flóanum.  Mótuð hefur verið metnaðarfull menningarstefna sem mun birtast á vefsíðu Þjórsárvers fljótlega.  Meðal árvissra viðburða er hin vinsæla og þekkta Tónahátíð í Þjórsárveri.  Listakaffi Þjórsárvers er starfrækt á sumrin, með listasýningum af ýmsu tagi.  Fjör í Flóanum er árviss menningarviðburður á hverju vori og víðar.  Nýlega festi Þjórsárver kaup á vönduðum sviðslýsingabúnaði og er með því orðið fyrirmyndarleikhús.  Salur rúmar um 200 í sæti, og í húsinu er gott hljóðkerfi og afbragðs hljómburður.  Sviðið er rúmgott með góðu bakrými og búningsklefum ásamt sturtum; aðstöðu til leiktjaldasmíði o.fl. og...

Sjá meira

Eilíf hamingja til Berlínar

Uppfærslu Hins lifandi leikhús á nýju íslensku leikverki þeirra Andra Snæs Magnasonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar hefur verið boðið til hina virta Maxim Gorkí leikhúss í Berlín í næstu viku. Verkið hefur hlotið gríðargóðar viðtökur hér heima.  Uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa og hafa gagnrýnendur keppst við að lofa það og uppfærslu þess á litla sviði Borgarleikhússins.  Maxim Gorkí leikhúsið er eitt virtasta leikhús Berlínar.  Það er staðsett í gömlu Austur-Berlin og á sér langa sögu.  Fyrir skemmstu tók nýr leikhússtjóri við stjórnartaumum í húsinu og hann leggur meðal annars áherslu á framsækið leikhús ungs fólks...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert