Author: lensherra

Íslandsklukkan á Húsavík

Leikfélag Húsavíkur æfir nú Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness og byggir á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur sem hún gerði fyrir Leikslistarskólann árið 1980. Mikil tónlist verður í þessari uppsetningu og er hún öll samin af Guðna Bragasyni tónlistarkennara og tónlistarstjóra uppsetningarinnar. Leikstjóri er Arnór Benónýsson. Æfingar hófust seint í ágúst og frumsýning er ákveðin 17. nóvember n.k. Leikarar eru um 20 talsins. ...

Sjá meira

Ökutímar frumsýnt Hjá LA

Föstudaginn 2. nóvember verður verðlaunaverkið Ökutímar eftir Paulu Vogel frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikritið hefur farið sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meðal annars hlaut það hin virtu Pulitzer-verðlaun þegar það var frumsýnt í Bandaríkjunum fyrir sjö árum. Glæsilegur hópur listamanna tekur þátt í uppsetningu LA á verkinu en meðal þeirra eru tónlistarkonan Lay Low en hún semur tónlist fyrir uppsetninguna og flytur í sýningunni. Þegar er uppselt á 17 sýningar verksins.  Ökutímar er margslungið leikrit sem segir þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja...

Sjá meira

Engin leiksýning hjá Hallvarði súganda sumarið 2008

Aðalfundur var haldinn hjá Leikfélaginu Hallvarði súganda laugardaginn 27. október sl. Aðeins stjórn félagsins mætti á fundinn en tekið skal fram að fundur telst löglegur ef löglega sé til hans boðað. Farið var yfir stöðu mála félagsins og framtíðin rædd. Ákveðið var af stjórn félagsins að taka sér leyfi frá störfum til næsta aðalfundar og því setur félagið ekki upp leiksýningu á næsta leikári.

 Leikfélagið Hallvarður súgandi var stofnað árið 1982 en hafði fyrir þann tíma starfað innan Íþróttafélagsins Stefnis og er hægt að rekja sögu þess langt aftur. Árið 1989 lagðist félagið svo til svefns en var vakið...

Sjá meira

Endastöð Ameríka sýnt í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið býður uppá gestaleik frá Volksbühne í Berlín. Verkið og leikstjórinn eru ekki af síðri endanum en Frank Castorf er einn af virtustu leikstjórum í Evrópu í dag. Verkið sem sýnt verður er Endastöð Ameríka og er túlkun Castorfs á leikriti Tennesee Williams Sporvagninn Girnd . Sýningin er samstarfsverkefni Volksbuhne í Berlín og Salzburg Festspiel og var frumsýnd árið 2000. Sýningin hlaut kröftugar móttökur við frumsýningu og eftir að hafa gengið í Salzburg og Berlín hefur sýningin farið í leikferð um heiminn og er nú komin til Íslands.  Konur á barmi taugaáfalls og meðvitundalausir mennBerlínar leikstjórinn Frank Castorf lýsir...

Sjá meira

Stúdentaleikhúsið frumsýnir Lífið liggur við

Laugardaginn 27. frumsýnir Stúdentaleikhúsið splunkunýjan íslenskan gamanleik, Lífið liggur við – grafalvarlegan skrifstofufarsa eftir Hlín Agnarsdóttur, leikstjóra verksins, í samvinnu við leikhópinn. Sýnt er í kjallara Norræna hússins. Það eru krepputímar í fyrirtækinu Mannleg samskipti group þar sem forstjórinn Guðmundur stendur á krossgötum. Eiginkonan er að yfirgefa hann og sumir starfsmenn fyrirtækisins kunna ekki almenna mannasiði. Á nokkrum fundum í fyrirtækinu sjáum við hvernig Guðmundi gengur að fást við undirmennina. Leikendur eru Hafliði Arnar Hafliðason, Erla Steinþórsdóttir, Lana Íris Guðmundsdóttir, Snjólaug Dís Lúðvíksdóttir , Sigurður Hólm, Atli Sigurjónsson, Kolbeinn Arnbjörnsson, Sigríður Eir Zophaníasdóttir, Ágústa Ósk Backman, Ugla Egilsdóttir Tónlist er eftir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert