Skilaboðaskjóðan frumsýnd 7. nóvember
Ævintýrasöngleikurinn Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson verður frumsýndur á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu miðvikudagskvöldið 7. nóvember kl. 20. Hér er á ferðinni litríkt og fjörugt ævintýri fyrir alla fjölskylduna þar sem kunnuglegar persónur skjóta upp kollinum. Leikritið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1993 og sló eftirminnilega í gegn, enda hefur verk þetta alla burði til þess að verða sígilt. Í tilefni af sýningunni kemur samnefnd bók Þorvaldar út að nýju hjá forlaginu Bjarti auk þess sem tónlistin úr sýningunni er endurútgefin á hljómdiski. Í Ævintýraskóginum búa fjölmargar litríkar persónur. Putti litli og Maddamamma eiga...
Sjá meira


