Author: lensherra

Ræðismannsskrifstofan frumsýnd í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 25.október verður leikritið Ræðismannsskrifstofan frumsýnt á Nýja svið Borgarleikhússins. Leikstjóri og höfundur Jo Strömgren og sýningin er unnin í samstarfi við Jo Strömgren Kompani. Sunnudaginn 28. október kl.  20 verður svo haldin dagskrá í tengslum við sýninguna þar sem hlutverk tungumálsins verður skoðað í víðu samhengi.
  Leikritið gerist á rússneskri ræðismannsskrifstofu í ónefndu landi, þar reyna diplómatarnir að halda dampi. Föðurlandið er víðs fjarri, pósturinn kemur sjaldan og síminn hringir aldrei. Illgresið nær að skjóta rótum og menn hætta að bera höfuðið hátt. En í ástinni leynist vonarneisti. Eina vandamálið er að ástin krefst meiri diplómatíu en lítil...

Sjá meira

Mikil aðsókn hjá sjálfstæðum leikhúsum

Aðsókn á sýningar sjálfstæðu leikhúsanna hefur stóraukist undanfarin ár. Síðastliðið leikár er engin undantekning þar sem heildaráhorfendafjöldi á sýningar sjálfstæðra leikhúsa var 255.000. Áttatíu og tvö sviðsverk voru sýnd á liðnu leikári og að meðaltali voru sýndar fjórar sýningar á dag alla tólf mánuði leikársins hjá sjálfstæðum leikhúsum. Hópar innan SL hafa margir hverjir einbeitt sér að leiklistaruppeldi barna og unglinga um allt land. Hér eru meðal annars á ferðinni farandleikhópar sem ferðast með sýningar sínar í skóla og leikskóla landsins og bjóða upp á fjölbreytt úrval sýninga. Eins hafa hópar sem setja upp verk fyrir fullorðna ferðast víða...

Sjá meira

Allt í plati hjá Leikfélagi Mosfellssveitar

Sunnudaginn 21. október klukkan 16:00 verður barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson frumsýnt hjá Leikfélagi Mosfellssveitar. Leikstjórar eru þau Herdís Þorgeirsdóttir og Ólafur Haraldsson en alls standa yfir 30 manns að sýningunni.  Leikritið er byggt á persónum úr barnaleikritum eftir Thorbjörn Egner og Astrid Lindgren. Lína langsokkur leiðir sýninguna og galdrar til sín nokkrar þekktar persónur á borð við Lilla klifurmús, Mikka ref og ræningjana Kasper, Jesper og Jónatan. Saman skemmta þau bæði börnum og fullorðnum með leik og söng eins og þeim einum er lagið. Frumsýning sunnudaginn 21. október kl. 16:002. sýning laugardaginn 27. október kl. 14:003. sýning...

Sjá meira

Leikhússport í Kópavogi

Nú á haustdögum fer af stað námskeið í leikhússporti hjá Leikfélagi Kópavogs. Félagar LK eru búinr að rýma til í nýju húsnæði sínu í Funalind í Kópavogi og útbúa æfingaaðstöðu þannig að nú er þeim ekki til setunnar boðið og mun námskeiðið hefjast fimmtudaginn 25. október næstkomandi. Námskeiðið er öllum opið sem áhuga hafa á að læra leikhússport eða æfa sig í spuna, en það verður haldið einu sinni í viku, á fimmtudögum, allavega til að byrja með. Einnig verða haldnar leikhússportkeppnir.  Um leikhússport Leikhússport eða theatersports er keppni í spuna og upphafsmaður þess er Keith Johnstone hjá Loose Moose...

Sjá meira

Alína frumsýnd á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir næstkomandi laugardag, 20. október kl. 17:00, barna- og fjölskylduleikritið Alína. Höfundur og leikstjóri verksins er Skagfirðingurinn Stefán Sturla Sigurjónsson og tónlistin er eftir Valgeir Skagfjörð. Sýnt er í Bifröst.  Verkið er um litla íslenska stelpu sem heitir Alína, hún missir fyrstu tönnina sína og lendir upp frá því í miklum ævintýrum meðal álfa, gnóma og trölla, hún er numin á brott af vondum kalli, til þess að bjarga henni úr þessum válegu höndum er björgunarsveit send út til að leita hennar og frelsa. Þetta er sem sagt fjölskylduævintýri um menn, gnóma, álfa og tröll.Þetta er viðamesta...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert