Kynning á Yasminu Reza á Smíðaverkstæðinu
Hvers vegna hlær fólk á leikriti sem heitir Vígaguðinn? er yfirskrift dagskrár sem Þjóðleikhúsið mun bjóða upp á á Smíðaverkstæðinu á Vetrarhátíð í Reykjavík þann 7. febrúar nk. Þar verður fjallað um frönsku skáldkonuna Yasminu Reza, eitt vinsælasta leikskáld samtímans, en leikrit hennar Vígaguðinn er sýnt í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Boðið verður upp á létta og notalega stemmningu á Smíðaverkstæðinu en þar geta gestir einnig notið léttra veitinga. Verk Yasminu Reza hafa á undanförnum árum verið leikin út um allan heim, en frægasta leikrit hennar er Listaverkið sem sló í gegn á Íslandi í uppsetningu Þjóðleikhússins árið 1997....
Sjá meira


