Author: lensherra

Óþelló, Desdemóna og Jagó á Lókal

Leikritinu Óþelló, Desdemóna og Jagó sem frumsýnt var 30. janúar á litla sviði Borgarleikhússins hefur verið boðin þáttaka á Lókal, alþjóðlegri leiklistarhátíð sem fram fer í Reykjavík í byrjun mars. Sýningin er samvinnuverkefni Draumasmiðjunnar, Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins. Óvenjuleg leikgerð Gunnars I. Gunnsteinssonar sem byggir á leikritinu Óþelló eftir Shakespeare hefur vakið athygli og óhætt að fullyrða að um einstaka tilraun er að ræða í íslensku sviðslistaumhverfi.  Í sýningunni eru aðeins þrjú hlutverk. Óþellós er dansaður af Brad Sykes. Desdemóna er leikin af heyrnarlausu leikkonunni Elsu G. Björnsdóttur og Jagó er leikinn af Hilmi Snæ Guðnasyni. Aðrir aðstandendur sýningarinnar eru...

Sjá meira

Baðstofan sýnd í Kassanum

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Baðstofan eftir Hugleik Dagsson nk. laugardag, þann 9. febrúar. Verkið er sýnt í Kassanum á Lindargötu 7. Hugleikur heldur þar áfram að kanna ástand íslensku þjóðarinnar og möguleika leikhússins í félagi við Stefán Jónsson leikstjóra, Ilmi Stefánsdóttur leikmyndahöfund og hljómsveitina Flís. Nú horfir Hugleikur um öxl en Baðstofan fullkomnar þannig þríleik höfundarins sem krufði samtímann í leikritinu Forðist okkur og spáði í framtíðina í söngleiknum Legi.   Baðstofan er þriðja leikritið úr smiðju Hugleiks Dagssonar og hópsins sem stóð að leikritinu Forðist okkur og söngleiknum Legi. Í þetta sinn beinir hópurinn sjónum sínum að fortíð okkar...

Sjá meira

Opið Þjóðleikhús á Vetrarhátíð

Dagana 7.-9. febrúar er Vetrarhátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið lætur ekki sitt eftir liggja. Í tilefni Vetrarhátíðar bjóðum við upp á notalegar stundir, fríar sýningar og almennt fjör á galopnum degi. Kynnið ykkur dagskrána og takið frá tíma í leikhúsinu. Næstkomandi laugardag verður opið hús í aðalbyggingu Þjóðleikhússins við Hverfisgötu þar sem fjölbreytt skemmtun verður í boði fyrir alla fjölskylduna milli kl. 13-16. Í Leikhúskjallaranum munu leikarar úr ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni troða upp og lesa ævintýrin sín. Rauðhetta, Gréta og Mjallhvít fara þar fremstar í flokki en yngstu gestirnir munu án efa hafa gaman að því að hlýða á viðburðaríkar sögur þeirra. Lestur þeirra verður endurtekinn þrisvar sinnum yfir daginn auk þess sem þessar ævintýralegu stúlkur munu líka taka lagið. Áhugasamir gestir geta fengið að láta smella af sér mynd með fleiri fígúrum úr Skilaboðaskjóðunni og reynt á lukkuna í skemmtilegum leik.    Á Stóra sviðinu hefst dagskráin á ljóðalestri. Leikarinn og þýðandinn Hjalti Rögnvaldsson mun lesa valin ljóð – úr ýmsum áttum og frá öllum tímum og er fólki boðið að tylla sér inn í salinn. Að því loknu, eða kl. 14.15 mun leikhópurinn sem þessa dagana vinnur að uppsetningu á leikritinu Sólarferð eftir Guðmund Steinsson koma sér fyrir á sviðinu. Leikstjórinn Benedikt Erlingsson stýrir uppákomu þar sem áhorfendur fá að skyggnast inn á „æfingu“ verksins sem frumsýnt verður þann 15. febrúar nk.   Sveinn Einarsson, fyrrum Þjóðleikhússtjóri, mun...

Sjá meira

Alsæla frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Unglingaleikritið Alsæla í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur verður frumsýnt kl. 20:00 þann 9. febrúar næstkomandi á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið er sprottið upp af umræðum og hugsunum leikhópsins og fært í búning af leikstjóranum. Sýningin inniheldur fjölda vinsælla laga og dansatriða ásamt auðvitað meitluðum texta. Leikritið er fært í mjög sjónrænan búning og lýst í dansi og söng á táknrænan og hreinan máta. Leikhópurinn samanstendur af 12 unglingum á aldrinum 15-19 ára. Forvarnir og fræðsla þurfa að vekja áhuga unglinga. Því eru notaðar aðferðir og leiðir sem eru á þeirra tungumáli og þau skilja. Um er að ræða jafningjafræðslu af...

Sjá meira

Halaleikhópurinn frumsýnir Gaukshreiðrið

Þann 9. febrúar nk. mun Halaleikhópurinn frumsýna Gaukshreiðrið „One Flew Over the Cuckoo's Nest“ eftir Dale Wasserman, byggt á skáldsögu Ken Kesey, í  þýðingu Sonju B. Jónsdóttur. Leikstjóri verksins er Guðjón Sigvaldason. Leikritið endurspeglar þann uppreisnaranda sem ríkti í vestrænum heimi á seinni helmingi sjöunda áratugar síðustu aldar. Það fjallar um eðli geðveikrahæla, stöðu sjúklinganna innan þeirra eins og litið var á geðjúkdóma um og upp úr miðri síðustu öld. Gaukshreiðrið er í senn ógnvekjandi, grátbroslegt og sprenghlægilegt og þetta samspil er fyrst og fremst ástæðan fyrir hinum miklu vinsældum þessa heimsfræga verks. Sýnt verður í Halanum, Hátúni 12...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert