Author: lensherra

Sýning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu fer í Þjóðleikhúsið

Á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga í Skagafirði núna um helgina tilkynnti Tinna Gunnlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri, hvaða leiksýning var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin árið 2008. Fyrir valinu varð uppsetning Halaleikhópsins á Gaukshreiðrinu eftir Ken Kesey og Dale Wasserman í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar og verður hún því sýnd í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs. Í umsögn dómnefndar sem skipuð var Tinnu og Vigdísi Jakobsdóttur segir m.a. Verkefnaval Halaleikhópsins ber vott um mikinn metnað, kjark og stórhug. Leikhópurinn, sem hefur það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla” fagnaði fimmtán ára afmæli sínu á þessu leikári. Rétt eins og Halaleikhópurinn hefur auðgað leiklistarflóru áhugaleikfélaga og...

Sjá meira

Dauðasyndirnar frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Þann 8. maí verður leikverkið Dauðasyndirnar frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins. Dauðasyndirnar er trúðaleikur fyrir fullorðna sem byggir frjálslega á Guðdómlegum gleðileik Dantes. 4 trúðar, þau Barbara, Gjóla, Za-ra og Úlfar, segja frá hremmingum Dantes  sem þarf að fara um helvíti, og hreinsunareldinn til til þess að uppskera paradís. Á leiðinni nýtur hann traustrar leiðsagnar Virgils. Í meðförum trúðanna verður efnið að dásamlegri skemmtun með ríku innihaldi sem vekur fólk til umhugsunar um leið og það tárast af gleði. Leikstjóri er Rafael Bianciotto. Upphaflega átti verkið að bera titillinn Dauðasyndirnar 7, en titillinn var settur í uppnám af sjálfum páfa...

Sjá meira

Starfsáætlun 2011-2012 


Starfsáætlun Bandalags íslenskra leikfélagaleikárið 2011-2012   Almenn starfsemi: 1. Rekstur þjónustumiðstöðvar, Leiklistarskóla, Leiklistarvefsins og annarra fastra liða í starfseminni. 2. Leita eftir hækkuðum framlögum úr opinberum sjóðum og frá einkaaðilum til starfsemi áhugaleikfélaganna og sameiginlegra verkefna. 3. Halda áfram samstarfi við Þjóðleikhúsið með Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. Sérverkefni ársins: 1. Taka þátt í Stuttverkahátíð í Færeyjum 15. október...

Sjá meira

Starfsáætlun 2016-2017

Starfsáætlun Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2016-2017 Almenn starfsemi 1. Rekstur þjónustumiðstöðvar, Leiklistarskóla, Leiklistarvefsins og annarra fastra liða í starfseminni. 2. Leita eftir hækkuðum framlögum úr opinberum sjóðum og frá einkaaðilum til starfsemi áhugaleikfélaganna og sameiginlegra verkefna. Sérverkefni ársins 1. Að haldið verði námskeið í stjórnun leikfélaga og markaðssetningu samhliða aðalfundi 2017. 2. Að halda afmælishátíð í tilefni af 20 ára afmæli Leiklistarskóla Bandalagsins vorið...

Sjá meira

Búlúlala á Ísafirði

Búlúlala – Öldin hans Steins er nýtt leikverk fyrir leikara og tónlistarmann sem Kómedíuleikhúsið setur á svið til að minnast aldarafmælis Steins Steinars. Leikurinn verður frumsýndur fimmtudaginn 8. maí í Tjöruhúsinu á Ísafirði. Alls verða þrjár sýningar á Ísafirði eftir það verður flakkað um Vestfirðina og sýnt á Flateyri, á Bíldudal, í Bolungarvík og í Haukadal í Dýrafirði. Einnig hefur leikhúsinu verið boðið að sýna leikinn á sérstakri Steins Steinars hátíð á Snjáfjallasetri 21. júní næstkomandi. Í þessum nýja ljóðaleik, Búlúlala – Öldin hans Steins, eru flutt mörg af þekktustu ljóðum Steins í bland við minna þekkt kvæði. Leikurinn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert