Author: lensherra

Síðustu sýningar á Galdrakarlinum í Oz

Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt útileiksýninguna Galdrakarlinn í Oz um allt land en nú líður að síðustu sýningum sumarsins. Næstu sýningar verða á Selfossi, Elliðaárdal og í Grindavík núna í vikunni. Síðasta sýningin í Elliðaárdalnum verður síðan miðvikudaginn 27. ágúst. Galdrakarlinn í Oz verður sýndur á eftirtöldum stöðum það sem eftir lifir ágústs: 19. ágúst, þriðjudagur, klukkan 18:00 á Selfossi, við Gesthús 20. ágúst, miðvikudagur, klukkan 18:00 Elliðaárdalurinn í Reykjavík 21. ágúst, fimmtudagur, klukkan 18:00 í Grindavík á túninu hjá Landsbankanum. 24. ágúst, sunnudagur, klukkan 13:00 á Hellu og klukkan 16:00 á Hvollsvelli 27. ágúst, miðvikudagur, klukkan 18:00 Elliðaárdalurinn í...

Sjá meira

Hverjir vilja fara til Monaco 2009?

Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco dagana 17.-26. ágúst 2009. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað fyrir það. Allur ferðakostanður er einnig greiddur af þátttakendum sjálfum. Sýningin má ekki vera lengri en 60 mín. og í reglum hátíðarinnar segir; „strongly advised to present predominantly visual performances“.     IATA (International Amateur Theatre Association) stendur fyrir leiklistarhátíðum í Monaco fjórða hvert ár. Þangað er boðið...

Sjá meira

Hugleikur og Leikfélag Kópavogs á NEATA-hátíð í Riga

Nú stendur yfir í Riga, höfuðborg Lettlands, leiklistarhátíð NEATA eða Norður-Evópska leiklistarsambandsins. Fulltrúi Íslands á hátíðinni er sýningin Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur sem Hugleikur og Leikfélag Kópavogs sýna í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Bingó verður sýnt á morgun, föstudaginn 8. ágúst. Auk íslensku sýningarinnar eru í ár eftirtaldar sýningar á hátíðinni: Who pulled the leg of Teddy bear off? eftir Hermanis Paukšs – Jurmala leikhúsið frá Lettlandi The coobler and the devil eftir Anton Chekhov – Birstonas Culture Centre leikhópurinn frá Litháen Beyond the sea eftir Juri Tuulik – Randlane leikhópurinn frá Haapsalu í Eistlandi Some explicit polaroids eftir Mark...

Sjá meira

Leikfélagið Sýnir frumsýnir á Akureyri

Leikfélagið Sýnir frumsýnir leikverkið Eyjuna á Akureyri 2. ágúst n.k. Eyjan er spunaverk sem segir sögu þriggja kvenna sem lenda saman á eyðieyju eftir hræðilegt flugslys og verða að takast á við nýjan veruleika. Ekki er allt sem sýnist á eyjunni og stuttu eftir brotlendinguna byrja mörkin milli draums og veruleika að mást út. Innan skamms eru konurnar þrjár komnar í baráttu upp á líf og dauða. Leikfélagið Sýnir hefur starfað af metnaði um margra ára bil og sýnt fjölmargar sýningar af ýmsum toga, flestar utandyra. Félagar í leikfélaginu eiga það sameiginlegt að hafa sótt námskeið í Leiklistarskóla Bandalags...

Sjá meira

Lotta leggur land undir fót

Leikhópurinn Lotta heldur nú í mikla leikferð um landið og mun sýna Galdrakarlinn í Oz á 18 stöðum víðsvegar um land. Nú þegar hefur Lotta heimsótt Vestfirðina og Suðurland auk þess sem sýnt hefur verið í bæum í nágrenni Reykjavíkur. Fyrsta sýningin í leikferðinni verður í Mofellssbæ í dag og síðan liggur leiðin upp á Skaga og í Borgarnes. 17. júlí, fimmtudagur, klukkan 18:00 í Mosfellsbæ Í Mosfellsbæ sýnum við á Hlégarðssvæðinu. 18. júlí, föstudagur, klukkan 18:00 á Akranesi Á Akranesi sýnum við á Merkurtúni. 19. júlí, laugardagur, klukkan 14:00 í Borgarnesi Í Borgarnesi sýnum við í Skallagrímsgarði 20....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert