Author: lensherra

Við flytjum!

Skrifstofa Bandalags ísl. leikfélaga flytur af Laugavegi 96 fimmtudaginn 28. ágúst nk. Við opnum að Suðurlandsbraut 16 kl. 9.00 mánudaginn 8. september. Þann sama dag milli kl. 17.00 og 19.00 verðum við með opið hús fyrir þá sem vilja koma og fá sér kaffi og kíkja á nýju aðstöðuna. Opnunartími á Suðurlandsbrautinni verður sá sami og var á Laugaveginum; frá kl. 9.00 til 13.00 virka daga. Ef ykkur vantar handrit eða förðunarvörur, hafið þá samband fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 27. ágúst. Við getum ekki afgreitt neitt þessa daga sem við erum að flytja og koma okkur fyrir. Bestu kveðjur, starfsfólk...

Sjá meira

Leikárið 08/09 í Borgarleikhúsinu

Það verður mikið um dýrðir í Borgarleikhúsinu á komandi leikári en fyrsta leikár nýs leikhússtjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, var kynnt starfsfólki í gær. Óhætt er að segja að fjölbreytnin sé mikil en verkin eru ólík innbyrðis, ný íslensk leikrit eru áberandi í bland við erlend gæðaverk, ný og eldri. Mörg verk höfða til allrar fjölskyldunnar, hómor og tónlist fá sinn sess en einnig eru áræðnar og krefjandi sýningar á boðstólum. Á Stóra sviði verður m.a. boðið upp á Fólkið í blokkinni, nýjan söngleik Ólafs Hauks Símonarsonar og Söngvaseið. Á meðal verkefna á Nýja sviði sem er vettvangur ögrandi verkefna...

Sjá meira

Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýnir DJ Hamingja

Íslenskt dansverk verður frumflutt fimmtudaginn 21. ágúst kl. 18:00 í Smiðjunni Sölvhólsgötu 13. Það er Hreyfiþróunarsamsteypan sem er þar á ferð og lýsir verkinu á eftirfarandi hátt: „Dansverk sem horfist í augu við einveruna í margvíslegum myndum. Hvernig á að teygja sig út til fólks án þess að missa jafnvægið? Getum við haldið partíinu gangandi eða er kominn tími til að fara heim?“ Hugmyndin að verkinu kviknaði fyrir tveimur árum þegar samsteypan var beðinn um að vinna verk fyrir Afmælishátíð dansleikhús með Ekka uppúr handriti „Eva3“. Síðan þá hefur hugmyndin tekið stakkaskiptum og orðið að sjálfstæðri sýningu. Þetta er...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Galdrakarlinum í Oz

Leikhópurinn Lotta hefur í sumar sýnt útileiksýninguna Galdrakarlinn í Oz um allt land en nú líður að síðustu sýningum sumarsins. Næstu sýningar verða á Selfossi, Elliðaárdal og í Grindavík núna í vikunni. Síðasta sýningin í Elliðaárdalnum verður síðan miðvikudaginn 27. ágúst. Galdrakarlinn í Oz verður sýndur á eftirtöldum stöðum það sem eftir lifir ágústs: 19. ágúst, þriðjudagur, klukkan 18:00 á Selfossi, við Gesthús 20. ágúst, miðvikudagur, klukkan 18:00 Elliðaárdalurinn í Reykjavík 21. ágúst, fimmtudagur, klukkan 18:00 í Grindavík á túninu hjá Landsbankanum. 24. ágúst, sunnudagur, klukkan 13:00 á Hellu og klukkan 16:00 á Hvollsvelli 27. ágúst, miðvikudagur, klukkan 18:00 Elliðaárdalurinn í...

Sjá meira

Hverjir vilja fara til Monaco 2009?

Bandalag íslenskra leikfélaga auglýsir eftir leiksýningu til að sækja um að fara á alþjóðlegu leiklistarhátíðina í Monaco dagana 17.-26. ágúst 2009. Hátíðahaldarar í Monaco bjóða leikhópi sem telur allt að 10 manns frítt uppihald í 4 daga. Hópurinn má vel vera stærri og stoppa lengur, þá þarf bara að borga eitthvað fyrir það. Allur ferðakostanður er einnig greiddur af þátttakendum sjálfum. Sýningin má ekki vera lengri en 60 mín. og í reglum hátíðarinnar segir; „strongly advised to present predominantly visual performances“.     IATA (International Amateur Theatre Association) stendur fyrir leiklistarhátíðum í Monaco fjórða hvert ár. Þangað er boðið...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert