Author: lensherra

Forleikur og ísbjörn á nýju leikári Kómedíuleikhússins

Leikár Kómedíuleikhússins er bæði ferskt og klassískt. Alls verða sex sýningar á fjölum leikhússins á nýju leikári þar á meðal frumsýnir Kómedíuleikhúsið nýjan Íslenskan einleik,  Auðun og ísbjörninn, sem er byggður á samnefndum Íslendingaþætti sem er án efa sá besti og vandaðasti Íslendingaþátta. Í Auðun og ísbjörninn halda Elfar Logi og Soffía Vagnsdóttir áfram farsælu samstarfi sínu en áður hafa þau unnið að tveimur vinsælum Kómedíuleikjum. Tveir kunnir listamenn vinna einnig að sýningunni en það eru þau Hrólfur Vagnsson sem semur tónlist sérstaklega fyrir uppfærsluna og Marsibil G. Kristjánsdóttir sem gerir leikmynd og búninga. Bæði hafa þau áður unnið...

Sjá meira

Sýningin fallega um Gosa aftur á svið

Nú er Gosi loksins kominn úr sumarfríi og aftur á fjalir Borgarleikhússins. Sýningin vakti mikla lukku á síðasta vetri og meira en 25 þúsund gestir hrifust með ævintýrum Gosa, Tuma engisprettu og allra hinna. Það vakti einnig mikla lukku sýningargesta að hitta hetjur sýningarinnar í forsal að sýningu lokinni. Miðasala er í fullum gangi í miðasölu Borgarleikhússins og á vefsíðunni borgarleikhus.is. Þess má geta að María Ólafsdóttir hreppti Grímuverðlaunin fyrir frábæra búningahönnuun fyrir leikverkið á verðlaunahátíðinni síðastliðið vor. Gosi er falleg, einlæg og fjörleg fjölskyldusýning með frábærri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson og eru sönglögin úr leikritinu þegar orðin...

Sjá meira

Framhaldsnámskeið í leikhúsförðun

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Framhaldsnámsikeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða Þátttökugjald: kr. 15.000.- Tími: 24. til 26. október 2008 Staður: Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík Skráningu lýkur 15. september Námskeiðið er sjálfstætt framhald af byrjendanámskeiðinu sem haldið var sl. haust, ætlað þeim sem einhverja reynslu hafa af förðun fyrir leikhús og/eða hafa sótt byrjendanámskeið. Kennd verður „karakterförðun“, unnið með latex, skalla, krephár og fleiri efni sem notuð eru til að breyta og bæta ásýnd leikarana á sviðinu.Kennt verður að búa til skallahettur, setja þær á og farða. Einnig að búa til skegg, augabrúnir og barta úr kréphári og líma...

Sjá meira

Maddid í Hafnarfjarðarleikhúsinu helgina 5.-6. sept.

Leikfélagið Maddid Theatre Company, sem starfar aðallega í London, sýnir sviðslistasýninguna Maddid í Hafnarfjarðarleikhúsinu Strandgötu 50 næstkomandi föstudags- og laugardagskvöld kl. 20:00. Með hlutverk Maddidar fer leikkonan Vala Ómarsdóttir. Vala stofnaði leikfélagið ásamt leikhúsframleiðandanum Mari Rettedal fyrir rúmu ári en síðan þá hafa fleiri listamenn bæst í hópinn. Maddid Theatre Company er fjölþjóðlegur hópur með rætur á Íslandi. Að sýningunum standa listamenn frá fimm löndum, Íslandi, Noregi, Bretlandi, Spáni og Brasilíu. Hefur verkið verið sýnt í leikhúsinu The Space í London á seinasta ári og á Kuiperfest listahátíðinni í Aragon á Spáni í júní sl. Maddid var sett upp...

Sjá meira

Opið hús í Þjóðleikhúsinu á morgun

Þjóðleikhúsið opnar dyr sínar upp á gátt milli kl. 13 og 16, laugardaginn 6. september en þá gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér starfsemi leikhússins, yst sem innst. Boðið verður upp á skemmtiatriði fyrir alla aldurshópa, kynnisferðir um leikhúsgaldrana baksviðs, leiksmiðjur og þjóð(leikhús)legar veitingar, svo eitthvað sé nefnt. Þarna gefst einnig gott tækifæri til þess að kynnast því sem framundan er í leikhúsinu í vetur. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri mun taka á móti gestum í sínu fínast leikhúspússi, en hún er eins og flestir vita margreynd leikkona og verður án efa með dramatíska takta á hraðbergi. Ræningjarnir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert