Author: lensherra

60 sýningar hjá aðildarfélögum SL

Dagskrá aðildarfélaga Sjálfstæðu leikhúsanna er fjölbreitt að vanda. Alls verður boðið upp á 60 sýningar næsta vetur.  Stærstur hluti sýninganna eru íslensk verk ætluð börnum og ungu fólki en einnig verða á ferðinni danssýningar, ópera og hefðbundnar leiksýningar. Tvær hátíðir verða haldnar á næsta leikári, Act alone á Ísafirði og Draumar – alþjóðleg döff leiklistarhátíð verður haldin í Reykjavík að þessu sinni en fyrsta hátíðinn var haldin á Akureyri fyrir tveimur árum.    Aðildarfélög SL hafa sent öllum heimilum landsins klippikort er veitir 1000 krónu afslátt af sýningum mánaðarins allan næsta vetur. Með þessu vilja aðildarfélögin þakka þeim rúmlega 250 þúsund áhorfendum...

Sjá meira

Theatre in Iceland 2006-2008

Ritið Theatre in Iceland er komið út. Ritið sem er á ensku inniheldur upplýsingar um leiksýningar og leiklist á Íslandi á árunum 2006 til 2008.  Hér er hægt að nálgast ritið á...

Sjá meira

Tvö opin námskeið hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss býður upp á tvö námskeið opin öllum í haust, jafnt byrjendum sem og reyndum. Annars vegar erum að ræða leiklistarnámskeið sem Gunnar Sigurðsson leikstjóri heldur og hins vegar námskeið í söng og raddbeitingu þar sem kennari er Kristjana Stefánsdóttir. Leiklistarámskeiðið verður tvær helgar, 20. – 21. september og 18. – 19. október. Fyrri helgina er farið í ýmis grunnatriði en seinni helgina verður unnið með brot úr verkum eða stutta þætti sem nemendur hafa fengið í hendur og kynnt sér. Kennari er Gunnar Sigurðsson sem leikstýrt hefur í Flóanum bæði Draumi á Jónsmessunótt og Gullna hliðinu. Gunnar...

Sjá meira

Bingó í Riga – Ferðasagan

Þann 2. ágúst sl. sté fríður hópur áhugaleikara úr Leikfélagi Kópavogs og Hugleik uppí flugvél og hélt á vit ævintýranna í Riga, höfuðborg Lettlands. Ætlunin var að sýna leikritið Bingó, sem félögin settu upp saman fyrir tveimur leikárum, á Norður-evópsku leiklistarhátíðinni sem haldin var þar í borg. Ásta Gísladóttir var með í hópnum og ritaði ferðasöguna. Fyrir rúmu ári síðan setti Leikfélagið Hugleikur og Leikfélag Kópavogs í sameiningu upp sýninguna Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Til stóð að vera með þessar klassísku 10-12 sýningar en yfirvöld í Kópavogi voru með aðrar hugmyndir og byrjuðu að rífa...

Sjá meira

Fýsn frumsýnt föstudaginn 12. sept.

Á Nýja sviði Borgarleikhússins verður nýtt íslenskt leikrit, Fýsn eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Backmann, frumsýnt föstudaginn 12. september. Leikritið vann leikritasamkeppnina „Sakamál á svið“ sem LR stóð fyrir árið 2006. Marta Nordal þreytir frumraun sína sem leikstjóri en þær Þórdís hafa unnið að uppsetningunni um nokkurt skeið. Að auki hefur Þórdís unnið að þróun þess í samstarfi við leikhús í Ástralíu og Bretlandi. Lífið virðist dans á rósum hjá ungum nýgiftum hjónum en fyrr en varir þurfa þau að horfast í augu við ógnvekjandi leyndamál. Hversu langt eru þau reiðubúin að ganga til að bjarga hjónabandinu og ástinni? Erfiðustu yfirheyrslurnar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert