Hel á Listahátíð í Reykjavík 23. og 24. maí
Ný íslensk ópera verður frumflutt í Íslensku óperunni á Listahátíð í Reykjavík um komandi helgi. Hér er um að ræða óperuna Hel eftir Sigurð Sævarsson tónskáld, sem byggð er á samnefndri sögu eftir Sigurð Nordal, en textinn í verkinu er saminn af leikhópnum sem setur hana upp, Hr. Níelsi. Óperan verður frumflutt laugardagskvöldið 23. maí kl. 20 og endurtekin kvöldið eftir, sunnudagskvöldið 24. maí kl. 20. Óperan Hel er sett upp í samstarfi sviðslistahópsins Hr. Níelsar, Caput-hópsins, Íslensku óperunnar og Listahátíðar í Reykjavík. Í einsöngshlutverkum í Hel eru Ágúst Ólafsson, barítón, í hlutverki Álfs, Jóhann Smári Sævarsson, bassi, í...
Sjá meira


