Author: lensherra

Síðustu sýningar á Ó, þú aftur?

Nú eru aðeins þrjár sýningar eftira af sýningu Hugleiks á Ó, þú aftur? eftir Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttir og Unni Guttormsdóttur í leikstjórn Odds Bjarna Þorkelssonar á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Þær eru miðvikudaginn 27. maí, fimmtudaginn 28. maí og föstudaginn 29. maí. Að hugleikskum sið leikur tónlist stórt hlutverk í sýningunni, en höfundar hennar eru Ljótu hálfvitarnir Þorgeir Tryggvason, Eggert Hilmarsson, Sævar Sigurgeirsson og Oddur Bjarni Þorkelsson. Hér er á ferð sérstök afmælissýning í tilefni af 25 ára starfsafmæli leikfélagsins. Hugleikur hefur getið sér orð fyrir glannalega meðferð á íslenskum menningararfi, en að þessu sinni er það hans eigin fortíð...

Sjá meira

Aukasýning á Kaffileikhúsi Halaleikhópsins

Líf og fjör hefur verið í Halanum undanfarnar vikur. Innanfélagsmenn hafa tekið höndum saman og æft stíft, bæði stuttverk og tónlist. Nokkrar húsmæður tóku sig til og gerðu helling af brauðtertum, skúffukökum og kleinum. Sem rann ljúft í gesti Kaffileikhússins 21. maí sl. Þá var uppselt og fólk varð frá að hverfa á fimmtudaginn svo að ákveðið hefur verið að skella upp aukasýningu á annan í Hvítasunnu, 1. júní kl. 17.00 Sýnd eru þrjú stuttverk:Miðvikudagur í Helvíti, eftir Ármann GuðmundssonBara Tjilla, eftir Jónínu Leósdóttur Einleikur fyrir höfund og leikara, eftir Benóný ÆgissonLeikstjóri allra verkanna er Gunnar Gunnarsson, GunsóHjólastólasveitin flytur...

Sjá meira

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum

Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum vegna þriðju úthlutunar úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 1. júní, en úthlutað verður í júnímánuði. Markmið Leikritunarsjóðsins Prologos er að hlúa að leikritun á Íslandi og efla höfundastarf við Þjóðleikhúsið, sem og að stuðla að framþróun og eflingu leiklistarinnar. Prologos veitir árlega allt að sex höfundum styrk til að vinna að leikhandriti, en einnig eru veittir styrkir vegna leiksmiðjuverkefna. Úthlutað er úr sjóðnum þrisvar á ári. Annars vegar er auglýst eftir hugmynd að leikriti. Við umsókn skal leggja fram lýsingu á verkinu á 2 blaðsíðum, 5 síður af leiktexta og stutta ferilskrá höfundar (1...

Sjá meira

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Rauðhettu

Laugardaginn 23. maí klukkan 14:00 frumsýnir Leikhópurinn Lotta splunkunýtt barna- og fjölskylduleikrit eftir Snæbjörn Ragnarsson. Leikritið heitir Rauðhetta og í því er fléttað saman þremur af þekktustu Grimms ævintýrunum, Rauðhettu, Hans og Grétu og Grísunum þremur. Snæbjörn semur einnig tónlist og söngtexta ásamt Baldri Ragnarsyni og Gunnari Ben. Þetta er útisýning og fer frumsýningin fram í svokölluðu Indjánagili í Elliðaárdal. Fólk er eindregið hvatt til að klæða sig eftir veðri. Leikhópurinn Lotta hefur tvö undanfarin sumur ferðast um landið og sýnt utandyra barnaleiksýningar, fyrst Dýrin í Hálsaskógi og svo Galdrakarlinn í Oz. Sýningarnar hafa jafnan verið vel sóttar og...

Sjá meira

Hel á Listahátíð í Reykjavík 23. og 24. maí

Ný íslensk ópera verður frumflutt í Íslensku óperunni á Listahátíð í Reykjavík um komandi helgi. Hér er um að ræða óperuna Hel eftir Sigurð Sævarsson tónskáld, sem byggð er á samnefndri sögu eftir Sigurð Nordal, en textinn í verkinu er saminn af leikhópnum sem setur hana upp, Hr. Níelsi. Óperan verður frumflutt laugardagskvöldið 23. maí kl. 20 og endurtekin kvöldið eftir, sunnudagskvöldið 24. maí kl. 20. Óperan Hel er sett upp í samstarfi sviðslistahópsins Hr. Níelsar, Caput-hópsins, Íslensku óperunnar og Listahátíðar í Reykjavík. Í einsöngshlutverkum í Hel eru Ágúst Ólafsson, barítón, í hlutverki Álfs, Jóhann Smári Sævarsson, bassi, í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert