Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar í Leikhúsinu
Stoppleikhópurinn sýnir nk. mánudag 18. maí í Leikhúsinu Funalind 2 í Kópavogi, nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-Hjálmars. Sýningin hefst kl.20.00. Verkið nefnist Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar en það var frumsýnt í maí sl. í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara. Nú gefst almenningi því tækifæri til að berja verkið augum. Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans og muna eftir honum af...
Sjá meira


