Litli leikklúbburinn sýnir í Reykjavík um helgina
Alþýðlega leik- og söngskemmtuninn Við heimtum aukavinnu! sem hefur verið sýnd yfir 10 sinnum fyrir troðfullu Edinborgarhúsi á Ísafirði verður nú sýnd í Reykjavík. Sýnt verður í Gullhömrum í Grafarholti um Hvítasunnuhelgina. Miðasala er þegar hafinn og um að gera að vera snöggur að panta því aðeins verða þrjár sýningar í boði. Óhætt er að segja að bræðurnir Jónas og Jón Múli Árnasynir hafi verið menn mikilla hæfileika. Í verkum sínum hittu þeir á einhvern tón sem þjóðin fílaði. Samstarfið var mjög gjöfullt og nánast hver einasti söngsmellur þeirra er enn á vörum manna í dag. Það væri alltof...
Sjá meira


