Jörundur snýr aftur á Menningarnótt
Í tilefni Menningarnætur verður leiksýningin um Jörgen Jörgensen, betur þekktan sem Jörund hundadagakonung, flutt aftur laugardaginn 22. ágúst. Í þetta sinn verður sýnt í Batteríinu og hefst sýningin klukkan 16.00. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en höfundar handrits eru Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason. Tilefnið er 200 ára afmæli hinnar stuttu en litríku valdatíðar Jörundar á Íslandi. Stiklað verður á stóru í ótrúlega viðburðaríku lífshlaupi þessa danska úrsmiðssonar og sægarps, en þó valdatíð hans á Íslandi sé sennilega hápunkturinn í ferli hans þá var hún svo sannarlega ekki það eina frásagnarverða. Á saga...
Sjá meira


