Author: lensherra

Rúi og Stúi snúa aftur í Kópavogi

Leiksýningin Rúi og Stúi sem frumsýnd var hjá Leikfélagi Kópavogs síðastliðið vor verður tekin upp að nýju nú um helgina. Áætlaðar eru níu sýningar fyrsta kastið. Nýmæli er að kynning og sala sýningarinnar er í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða krossins. Þriðjungur af miðaverði mun renna til Barna- og ungmennastarfs Rauða krossins. Á móti mun Kópavogsdeildin nýta tengsla- og sjálboðaliðanet sitt til að kynna sýninguna. Rúi og Stúi fjallar sérkennilega uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða lagað hvað sem er. Bæjarbúar eru afar ánægðir með vélina eins og gefur að skilja en blikur eru á...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug

Enn á ný mun Leikfélag Selfoss takast á Hugarflug en það er orðinn fastur liður í starfi félagsins. Hugarflug er eins konar grasrótarstarf leikfélagsins en þar fá leikfélagsmeðlimir og aðrir frjálsar hendur til að vinna stutt verk, ljóð eða tónlist eftir eigin nefi sem sett er saman í eina sýningu og sýnd í takmörkuðu upplagi. Hugarflugið hefur vakið mikla lukku og aðsókn verið sívaxandi. Að þessu sinni verða sýnd 3 stutt leikverk þar sem koma við sögu misheyrandi starfsmenn og gamalmenni, huglaus hetja, starandi hjúkka og brjáluð draumadís. M.a. verður sýnt verkið Góðar stundir sem fór góða ferð á stuttverkahátíðina...

Sjá meira

Haustleikar Halaleikhópsins 2009

Halaleikhópurinn blæs nú til Haustleika. Þetta haustið verða fjögur stuttverk sýnd og tónlist flutt á milli atriða. Sýnt verður laugardaginn 17. okt. kl. 20.00 og sunnudaginn 18. okt. kl. 17.00 í Halanum, Hátúni 12. Vöfflur, kaffi og gos verða seld í hléi. Verkin sem flutt verða eru:Bara bíða eftir Júlíu Hannam í leikstjórn Gunnars Gunnarssonar, Gunsó.Þykist þú eiga veski eftir Fríðu Bonnie Andersen í leikstjórn Árna Salomonssonar.Hærra minn guð til þín eða prívat hagsmunir eiga ekki við hér eftir Ylfu Mist Helgadóttur í leikstjórn Gunnars GunnarssonarPrinsipp eftir Örn Alexandersson í leikstjórn Árna Salomonssonar. Miðasala er í síma 862-4276 og...

Sjá meira

Saumastofan á Egilsstöðum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir föstudaginn 16. október kl. 20 Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjórinn, Daniel Behrend, kemur úr röðum félagsmanna, og þaðan kemur einnig tónlistarstjórinn, Freyja Kristjánsdóttir. Leikritið verður sýnt í Valaskjálf á Egilsstöðum og eru áætlaðar 10 sýningar. Næstu sýningar: 16. október – föstudag kl. 20:00 – Frumsýning 17. október – laugardag kl. 20:00 18. október – sunnudag kl. 15:00 23. október – föstudag kl. 20:00 24. október – laugardag kl. 20:00 25. október – sunnudag kl. 15:00 29. október – fimmtudag kl. 20:00 Miðasala í síma 862-3465 eftir kl. 16:00....

Sjá meira

Maður í mislitum sokkum í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfus frumsýnir gamanleikritið Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Bachman föstudaginn 16. október í Versölum í Þorlákshöfn. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson. Verkið fjallar um eldri konu sem kemur heim með mann sem hún fann í bílnum sínum. Sá hefur misst minnið og man t.d. ekki hver hann er eða hvar hann býr. Maðurinn er í mislitum sokkum og hvað segir það um hann?  Með hlutverk fara Þrúður Sigurðardóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Arnar Gísli Sæmundsson, Hulda Gunnarsdóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Hallgrímur Páll Sigurbjörnsson, Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir og Ottó Rafn Halldórsson. Miða er hægt að nálgast í forsölu hjá...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert