Author: lensherra

Leiklistarnámskeið á Selfossi

Dagana 24. og 25. október ( laugardag og sunnudag), frá klukkan 13.00 – 17.00 bíður Leikfélag Selfoss  upp á leiklistarnámskeið undir stjórn Árna Péturs Guðjónssonar.  Námskeiðið er hugsað sem nokkurs konar masterclass námskeið fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af leiklist. Á námskeiðinu verður farið textavinnu, unnið með senur og stutta mónólóga. Námskeiðið er krefjandi og farið verður með þátttakendur á nýjar slóðir í textavinnunni. Allir fá sendan texta sem þeir eru beðnir um að kunna utanbókar þegar námskeiðið hefst. Þátttakendur eru beðnir um að koma í léttum og þægilegum klæðnaði. Við hvetjum sem flesta að láta þetta frábæra...

Sjá meira

Lífið liggur við næsta verkefni Leikfélags Hörgdæla

Hjá Leikfélagi Hörgdæla hefjast æfingar á leikritinu „Lífið liggur við” eftir Hlín Agnarsdóttur í desember. Leikstjóri verður Saga Jónsdóttir. Saga setti upp aðsóknarmestu sýningu allra áhugaleikhópa á landinu síðastliðinn vetur. Það var gamanleikritið „Stundum og stundum ekki”, sem Leikfélag Hörgæla sýndi. Sýningarnar urðu alls 25 og gestir alls 2.208. Á aðalfundi félagsins 6. okt. sl. var Bernharð Arnarson kosinn formaður félagsins. Aðrir í stjórn voru kosin Axel Vatnsdal (varaformaður), Halla Halldórsdóttir (ritari), Sigríður Svavarsdóttir (meðstjórnandi) og Stefán Jónsson (gjaldkeri). Úr stjórn gengu Ásgeir Már Hauksson, Tryggvi Gunnarsson og Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, sem hefur verið formaður félagsins undanfarin þrjú ár....

Sjá meira

Rúi og Stúi á Sauðárkróki

Sunnudaginn 25. október frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks barnaleikritið Rúi og Stúi eftir Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Heimamennirnir Rögnvaldur Valbergsson og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson hafa samið nýtt lokalag fyrir sýninguna. Aðalhlutverkin eru í höndum Jónatans Björnssonar og Gísla Felix Ragnarssonar, en þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir báðir leikið með LS í mörg ár. Leikendur í verkinu eru alls 13 og að auki eru 25 aðrir sem að uppsetningunni koma.  Verkið fjallar um uppfinningamenninga Rúa og Stúa. Þeir hafa fundið upp undravél sem er þeim hæfileikum gædd að hún leysir hvaða verkefni sem er, hún...

Sjá meira

Rúi og Stúi snúa aftur í Kópavogi

Leiksýningin Rúi og Stúi sem frumsýnd var hjá Leikfélagi Kópavogs síðastliðið vor verður tekin upp að nýju nú um helgina. Áætlaðar eru níu sýningar fyrsta kastið. Nýmæli er að kynning og sala sýningarinnar er í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða krossins. Þriðjungur af miðaverði mun renna til Barna- og ungmennastarfs Rauða krossins. Á móti mun Kópavogsdeildin nýta tengsla- og sjálboðaliðanet sitt til að kynna sýninguna. Rúi og Stúi fjallar sérkennilega uppfinningamenn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða lagað hvað sem er. Bæjarbúar eru afar ánægðir með vélina eins og gefur að skilja en blikur eru á...

Sjá meira

Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug

Enn á ný mun Leikfélag Selfoss takast á Hugarflug en það er orðinn fastur liður í starfi félagsins. Hugarflug er eins konar grasrótarstarf leikfélagsins en þar fá leikfélagsmeðlimir og aðrir frjálsar hendur til að vinna stutt verk, ljóð eða tónlist eftir eigin nefi sem sett er saman í eina sýningu og sýnd í takmörkuðu upplagi. Hugarflugið hefur vakið mikla lukku og aðsókn verið sívaxandi. Að þessu sinni verða sýnd 3 stutt leikverk þar sem koma við sögu misheyrandi starfsmenn og gamalmenni, huglaus hetja, starandi hjúkka og brjáluð draumadís. M.a. verður sýnt verkið Góðar stundir sem fór góða ferð á stuttverkahátíðina...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert