Author: lensherra

Þetta er ekki einleikið

Hugleikur sýnir sjö einleiki fyrir konur sunnudaginn 1. nóvember og mánudaginn 2. nóvember kl. 20 bæði kvöld undir yfirskriftinni Þetta er ekki einleikið. Um er að ræða afrakstur af einleikjanámskeiði sem Agnar Jón Egilsson hefur stýrt á síðustu vikum. Sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Tekið er á móti frjálsum framlögum við innganginn auk þess sem kaffi og meðlæti er selt í hléi í fjáröflunarskyni. Einleikirnir sem sýndir verða eru Snakk eftir Júlíu Hannam, Happasteinn eftir Ástu Gísladóttur, Snyrting eftir Nínu Björk Jónsdóttur, Þarna úti eftir Hrefnu Friðriksdóttur, Á hjólum eftir V. Kára Heiðdal, Hvað er bak...

Sjá meira

Sindri silfurfiskur frumsýnt 31. október

Þjóðleikhúsið frumsýnir Sindra silfurfisk, nýtt íslenskt barnaleikriti eftir Áslaugu Jónsdóttur, laugardaginn 31. október kl. 13:30. Sýningin er í Kúlunni, barnaleikhúsi Þjóðliekhússins að Lindargötu 7. Hafdís í skrautfiskabúðinni Fjörfiskar er löngu hætt að selja fallegu fiskana sína. Þeir eru vinir hennar og hún vill miklu heldur segja þeim sögur, eins og til dæmis söguna af Sindra silfurfiski og leyndarmálinu hans. Sindri silfurfiskur á sér þann draum svalastan að verða gullfiskur og á leið sinni um hafdjúpin mætir hann ótal skrýtnum og skrautlegum sjávardýrum – og sum þeirra eru mjög hættuleg! Þetta er hugljúft og undurfallegt ævintýri fyrir börn frá 3ja...

Sjá meira

Allt á fullt hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss mun hefja af fullum krafti núna í vikunni, vinnu við stóru uppsetningu vetrarins. Um er að ræða leikgerð Hafnarfjarðarleikhússins á Birting sem unnin er upp úr samnefndri sögu franska rithöfundarins Voltaire, í þýðingu Halldórs Laxness. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson sem er uppalinn hjá leikfélaginu og hefur leikstýrt nokkrum sinnum áður hjá Leikfélagi Selfoss. Haldinn verður kynningarfundur fimmtudaginn 29. október kl. 20.00 í Litla leikhúsinu við Sigtún þar sem verkið, leikstjórinn og vinnan kringum sýninguna verður kynnt og allir þeir sem vilja taka þátt, hvort sem er á sviðinu eða bak við tjöldin, eru sérstaklega velkomnir en...

Sjá meira

Fólkið í blokkinni frumsýnt á Húsavík

Fjölskyldusöngleikurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýndur hjá Leikfélagi Húsavíkur á laugardag. Oddur Bjarni Þorkelsson leikstýrir. Verkið fjallar um fólk sem býr í blokk í Reykjavík og það ákveður að setja upp söngleik í blokkinni. Þar búa nefnilega meðlimir hljómsveitarinnar Sónar, sem átti einn „hittara“ fyrir 10 árum, Fólkið í blokkinni. Í blokkinni búa margir skemmtilegir einstaklingar eins og Robbi húsvörður sem á það til að láta hlutina og fólkið í blokkinni fara í taugarnar á sér og Valerí pólska hóran. Þarna býr líka fjölskylda ein þau Solla spákona, Tryggvi tryggingasölumaður og börnin þeirra tvö Óli...

Sjá meira

Haustfundur Bandalagsins 2009

Bandalag íslenskra leikfélaga boðar til haustfundar að Öngulsstöðum í Eyjafirði helgina 13. til 15. nóvember 2009. Ástæða er til að hvetja aðildarfélögin til að senda fulltrúa á fundinn en umfjöllunarefni hans eiga brýnt erindi við ykkur öll. Tilkynnið þátttöku fyrir mánudaginn 2. nóvember í netfangið info@leiklist.is eða í síma 5516974. Dagskrá: Föstudagur 13. nóvember: Kvöldverður kl. 19.30–20.30Fundur settur kl. 21.00 og verður kvöldið helgað vinnu leikstjórans en gestur fundarins verður Steinunn Knútsdóttir, formaður Félags leikstjóra á Íslandi Laugardagur 14. nóvember: Dagurinn fer í að ræða stóru málin tvö:Lækkuð framlög ríkisins til áhugaleiklistar 2010 og Leiklistarhátíð NEATA á Akureyri 2010...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert