Aðalfundur 2010
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Sveinbjarnargerði í Eyjafirði dagana 1. og 2. maí 2010. Leiklistarhátíð NEATA, sem haldin verður á Akureyri 10.–15. ágúst, verður undirbúin að kvöldi 30. apríl. Dagskrá aðalfundar er í lögum Bandalagsins.Samhliða aðalfundi fer fram sýning á leikskrám og veggspjöldum leikársins 2009-2010. Val Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins verður að venju kynnt á hátíðakvöldverðinum. Fundurinn verður settur laugardagsmorguninn 1. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 2. maí. Fundargestir eru boðnir velkomnir seinnipart föstudagsins 30. apríl en þá um kvöldið er fyrirhugað að skoða Menningarhúsið Hof á Akureyri og ræða um...
Sjá meira


