Author: lensherra

Málþing um sviðslistir á Barnamenningarhátíð 2010

Í tilefni af yfirstandandi Barnamenningarhátíð boða Leiklistarsamband Íslands og Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 til málþingsins Allir á svið?, laugardaginn 24. apríl klukkan 10–14. Málþingið er einhvers konar stefnumót sviðslista- og skólafólks og er í formi nokkurra örstuttra erinda sem öll varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum og barnamenningu. Hverju erindi lýkur á spurningu til fundarins. Það verður haldið í Víkinni-Sjóminjasafninu Grandagarði 8  Reykjavík. Ættu öll íslensk börn að fá tækifæri til að stunda og njóta sviðslista sem hluta af sinni skólagöngu? Er hugsanlegt að aukin áhersla á greinar eins og leiklist og dans geti svarað kalli samtímans...

Sjá meira

Hugleikur frumsýnir Rokk

Hugleikur frumsýnir nýtt íslenskt leikrit sem nefnist Rokk í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar föstudaginn 23. apríl kl. 20.00 í húsnæði Hugleiks að Eyjarslóð 9. Höfundar leikritsins eru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson, en höfundur tónlistar er Eggert Hilmarsson. Einungis eru fyrirhugaðar 5 sýningar á Rokki. Rokk fjallar um tvær hljómsveitir sem deila með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur að skilja koma upp ýmsir árekstrar og flækjur, og það setur óneitanlega strik í reikninginn að í annarri sveitinni eru eingöngu strákar, en hin er aðeins skipuð stelpum. Þar að auki koma við sögu eigandi húsnæðisins og...

Sjá meira

Leiklistarfélag Seltjarnarness frumsýnir Draugar og forynjur

Leiklistarfélag Seltjarnarness hefur í vetur unnið að uppsetningu á leikverkinu Draugar og forynjur og sunnudaginn 25. apríl kl. 14.00 er komið að frumsýningu og þá um kvöldið kl. 20.00 verður 2. sýning. Verkið er hvort tveggja í senn frumsamið í samvinnu leikfélaga og leikstjóra Bjarna Ingvarsson og byggt á ýmsum þjóðsögum. Sýnt er í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Verkið hefst á fundi í Drauga og forynjufélaginu í anda fortíðar með margbreytilegar uppákomur þar sem hinar ýmsu kynjaverur koma við sögu. Þá er brugðið upp myndum af því sem koma skal og færist leikurinn síðan heim að Gili þar sem gömul...

Sjá meira

Tvö verk frumsýnd í Norðurpólnum um helgina

Það verður mikið um að vera í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi um helgina því þar verða tvær leiksýningar frumsýndar. Laugardaginn 24. apríl frumsýnir leikhópurinn Börn Loka Glerlaufin eftir Philip Ridley í leikstjórn Bjartmars Þórðarsonar og sunnudaginn 25. apríl verður svo leikritið Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar eftir Dorota Maslowska í leikstjórn Heiðars Sumarliðsonar frumsýnt. Norðurpóllinn er að Sefgörðum 3, nálægt Gróttu. Glerlaufin er öflugt breskt nútímaleikrit eftir hinn margrómaða höfund Philip Ridley. Hann hefur skrifað fjölda leikrita og hlotið fjölmörg verðlaun fyrir skrif sín.Verkið fjallar um tvo ólíka bræður, Steven og Barry. Steven fetar beinu brautina og á hið fullkomna...

Sjá meira

Íslandsklukkan frumsýnd á 60 ára afmæli Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið verður 60 ára á fimmtudaginn 22. apríl, sumardaginn fyrsta, og þá um kvöldið verður jafnframt frumsýning á Íslandsklukkunni í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Íslandsklukkan var ein af þremur opnunarsýningum Þjóðleikhússins og verkið hefur, jafnt á bók sem á sviði, notið gífurlegra vinsælda hjá íslensku þjóðinni. Svipmiklar persónur þess, á borð við Jón Hreggviðsson (Ingvar E Sigurðsson), Snæfríði Íslandssól (Lilja Nótt Þórarinsdóttir) og Arnas Arneus (Björn Hlynur Haraldsson), hafa eignast sinn vissa stað í hjarta ótal Íslendinga af ólíkum kynslóðum. Í því þjóðfélagslega umróti sem við lifum nú, á þetta stórvirki um tilvistarspurningar sem lítil þjóð stendur frammi fyrir, brýnt...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert