Aðalfundur Halaleikhópsins 2010
Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.00 heldur leikfélagið Halaleikhópurinn aðalfund í húsnæði sínu, Halanum Hátúni 12. Dagskrá fundarins verður skv. lögum félagsins og eru allir hvattir til að mæta, bæði gamlir meðlimir og þeir sem kunna að hafa áhuga á að starfa með félaginu en það starfar einmitt undir kjörorðunum leiklist fyrir alla. Dagskrá aðalfundar skv. lögum félagsins:1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Inntaka nýrra félaga.3. Skýrsla stjórnar.4. Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar. 6. Starfsemi næsta leikárs. 7. Kosning stjórnar, varastjórnar, tveir skoðunarmenn reikninga.8. Önnur mál Auglýst er eftir framboðum í eftirfarandi embætti:...
Sjá meira


