Góðverk á Gjaldeyri
Halaleikhópurinn Góðverkin kalla Leikstjórar: Margét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Leiðin til vítis er vörðuð góðum ásetningi segir einhversstaðar og því má snúa upp á leikritið Góðverkin kalla sem Halaleikhópurinn frumsýndi um liðna helgi. Leikritið sem er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason, gerist í þorpinu Gjaldeyri við Ystunöf og bakgrunnurinn í verkinu er hörð samkeppni karlaklúbbanna Dívans og Lóðarís. Klúbbarnir keppast hvor við að yfirbjóða hinn í góðverkunum og fórnarlambið er sjúkrahúsið sem er að fyllast af allskyns nýtísku lækningatækjum sem enginn veit til hvers eru. Enginn hlustar á aumingja héraðslækninn sem aðeins vantar nýja...
Sjá meira


