Author: lensherra

Ársrit BÍL 2009-10 komið út

Eftir allnokkra töf vegna innbrots er Ársrit Bandalagsins 2009–2010 loksins komið út. Reyndar er það fyrst og fremst aðgengilegt hér á netinu og er hægt að hala því niður sér að kostnaðarlausu. Þó er hægt að kaupa útprentuð eintök á 1500 kr. í þjónustumiðstöð Bandalagsins, Suðurlandsbraut 16 (eða panta og fá sent í póstkröfu á info@leiklist.is). Efni ritsins er hefðbundið, yfirlit á sýningar aðildarfélaga og aðra starfsemi, ársreikningar, fundargerðir o.þ.h., en einnig er umfjöllun um Stuttverkahátíðina Margt smátt 2009 á Seltjarnanesi. Ársritið má nálgast hér á PDF formi. Stærðin er 4.2...

Sjá meira

Með fullri reisn í Hörgárdalnum

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á leikritinu Með fullri reisn eftir Terrance McNally. Leikritið er þýtt af Karli Ágústi Úlfssyni og leikstýrt af Jóni Gunnari Þórðarssyni og hefur hann ásamt leikurum  staðfært verkið heim í Hörgárdalinn. Um er að ræða bændur sem sjá sér þann kost vænstan í kreppunni að drýgja tekjurnar með því að halda konukvöld þar sem fötum mun fækka. En hversu langt verður gengið? Það mun allt  koma í ljós þegar leikritið verður frumsýnt í byrjun mars að Melum í Hörgárdal.   Verkið telur í kring um 20 leikara ásamt fjölda fólks sem kemur að því...

Sjá meira

Íslendingum boðið í Leiklistarskóla MáF í Færeyjum

Meginfélag áhugaleikara í Færeyjum bíður áhugasömum Íslendingum á námskeið í leikmyndagerð hjá danska leikmyndahöfundinum Jan de Neergaard eða á önnur námskeið í Leiklistarskóla Færeyja, sem starfa mun 1.-5. júní 2011 í Lýðháskóla Færeyja. Í skólanum verður einnig kennd leikritun, leikstjórn og leiklist. Íslendingum er boðin þátttaka í námskeiðinu, fæði og gisting þeim að kostnaðarlausu. Sjálfir þurfa þeir þó að standa straum af ferðakostnaði til og frá Færeyjum. Tveir íslenskir kennarar kenna við skólann, Sigrún Valbergsdóttir og Ágústa Skúladóttir. Jan de Neergaard hefur starfað við leikmyndagerð í leikhúsum og við danska sjónvarpið síðan hann lauk prófi frá Danmarks Designskole árið...

Sjá meira

Brák á leið í Þjóðleikhúsið

Einleikurinn Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur hefur verið sýndur undanfarin þrjú ár á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Verkið var sérstaklega skrifað til flutnings þar og hefur sýningin, í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar, gengið fyrir fullu húsi í þrjú ár. Nú hefur Landnámssetur – Brynhildur þegið boð Þjóðleikhússins um að sýna verkið í Kúlunni og hefjast sýningar þar 6. febrúar. Verkið er saga Þorgerðar brákar, ambáttar landnámsmannsins Skallagríms Kveldúlfssonar og fóstru Egils Skallagrímssonar. Leikritið vann Brynhildur uppúr Egilssögu aðallega en öðrum Íslendingasögum einnig, fornaldarsögum norðurlanda, svo og írskum sögum og annálum. Frásögnin er innblásin af sagnahefð sögualdar á Íslandi og frásögnum...

Sjá meira

Skemmtileg dauðans alvara hjá Hugleik

HugleikurHelgi dauðansLeikstjórar: Rúnar Lund og Sigurður PálssonÉg hef stundum stungið upp á því að kalla síðustu aldamótakynslóð á Íslandi, „Friends“ kynslóðina, því að engin kynslóð hefur verið eins mikið mótuð af þessari amerísku sjónvarpsþáttaseríu og hún. Það var því ánægjuefni að sjá íslenskan leikritahöfund loksins takast á við það verkefni að skoða þennan hóp þar sem pítsur og djamm eru fastir punktar í tilverunni.  Það er augljóst að Sigríður Lára Sigurjónsdóttir höfundur verksins  tekur ákveðið mið af persónum Friends þáttana í sumum þeirra persóna sem birtast á sviðinu, þótt að þær séu ögn ýktari en í þáttunum. Hver þekkir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert