Hedda Gabler frumsýnt í Kassanum
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 10. mars leikritið Hedda Gabler eftir Henrik Ibsen í Kassanum. Í þessu sígilda leikriti ræðst Ibsen að kjarna þeirra borgaralegu lífsgilda sem móta líf nútímamanna og stýra löngunum þeirra og ótta. Að lokinni sex mánaða brúðkaupsferð kemur Hedda Gabler heim í glæsilega einbýlishúsið sitt. Fastráðning eiginmanns hennar við háskólann er á næsta leiti, tilveran er þægileg og framtíðin hefur verið kortlögð. En það líður ekki nema sólarhringur þar til Heddu hefur tekist að mölva þessa fullkomnu mynd. Hvenær verður krafa nútímamannsins um öryggi að rammgerðu fangelsi? Og hvað gerist þegar við reynum að sleppa út? Er...
Sjá meira


