Author: lensherra

Leiklist – uppsetningar, sýningar og aðsókn 2009/2010

Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fjölgaði um 61 þúsund frá því á leikárinu á undan, eða um 17 af hundraði. Á síðasta leikári voru færðar á fjalirnar 236 uppfærslur á vegum leikhúsa, leikhópa og leikfélaga, sem sýndar voru 2.352 sinnum. Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á leikárunum 2000/2001– 2009/2010 er sýndur á meðfylgjandi mynd. Inni í tölum um aðsókn eru gestir á sýningar leikhúsa, leikhópa og leikfélaga í skólum og á...

Sjá meira

Havgird í Gaflaraleikhúsinu 16. og 17. apríl

Havgird, færeyska sýningin sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir og sló eftirminnilega í gegn á NEATA-hátíðinni síðastliðið sumar, er á leið til Íslands! Leikritið verður sýnt í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði 16. og 17. apríl. Sýningin er afar sjónræn þar sem meðal annars er notast við tónlist, trúðleik og brúðuleik til að skapa hversdagslegan töfraheim sem slunginn er gleði og sorg. Leikmyndin er í anda þessa töfraheims, þar sem m.a. er notast við þang til að skapa rétta stemningu. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá færeyskt og íslenskt leikhús eins og það gerist best. Havgird var sett upp síðastliðið vor af...

Sjá meira

Heima hjá ömmu á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur frumsýnir föstudaginn 25. mars næstkomandi leikverkið Heima hjá ömmu eftir bandaríska leikskáldið Neil Simon, sem á sínum tíma fékk bæði Pulitzer- og Tony verðlaunin fyrir verkið. Sýnt er í Ungó og eru áætlaðar eru 11 sýningar á verkinu. Leikstjóri er Aðalsteinn Bergdal. Sagan gerist í Yonkers, smábæ norðan við New York árið 1942. Amman, frú Kurnitz, er þýskur gyðingur sem rekur sælgætisverslun í bænum. Eldri sonur hennar, Eddi, er komin í heimsókn með tvo stálpaða syni sína. Hann hefur nýlega misst eiginkonu sína og hefur steypt sér í miklar skuldir vegna hjúkrunar á henni. Hann er kominn...

Sjá meira

Kvikmyndin Glæpur og samviska frumsýnd

Ný íslensk kvikmynd, Glæpur og samviska, verður frumsýnd í Valaskjálf á Egilsstöðum föstudaginn 25. mars en hún er unnin í samvinnu við Leikfélag Fljótsdalshéraðs. Þessi mynd hefur verið í vinnslu í fjögur ár og er alfarið tekin á Austurlandi. Leikstjórinn Ásgeir Hvítaskáld hefur þjálfað og ræktað áhugamannaleikara í hlutverkin og notað hið stórbrotna landslag á Austurlandi sem leiksvið. Ásgeir hefur lært kvikmyndagerð í Danmörku og hefur getið sér orð fyrir sterkar sögur. Hann hefur gert 12 heimildar- og stuttmyndir sem hafa fengið viðurkenningar víða um heim. Að tónlistinni í myndinni koma meðal annars Björn Thoroddsen, Margét Eir og Svavar...

Sjá meira

Ávarp á alþjóðlegum leikhúsdegi barna, 20. mars 2011

Börnin grípa andann á lofti þegar Lilli klifurmús rétt sleppur upp í tré undan fantinum Mikka og skömmu síðar veltast þau um af hlátri þegar Lilli leikur á refinn. Það er gott að vita af því að þó maður sé lítill þá er maður einhvers megnugur. Það er líka gott að eiga einhversstaðar athvarf þar sem hægt er að heyra sögu sem segir eitthvað um lífið sem maður er að reyna að fóta sig í. Og að gleðjast og  fræðast og kannski hræðast pínulítið en þó ekki of mikið. Það er börnum eðlilegt að leika sér og leika og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert