Author: lensherra

Tvær aukasýningar á Einkamál.is

Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á uppfærslunni Einkamál.is eftir Árna Hjartarson í leikstjórn Huldu B. Hákonardóttur og Þorgeirs Tryggvasonar. Frá því Hugleikur frumsýndi verkið 15. apríl sl. hefur verið uppselt á allar sýningar og færri komist að en vildu. Aukasýningarnar verða laugardaginn 7. maí og sunnudaginn 8. maí kl. 20.00 bæði kvöld, en sýnt er í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur fjölskyldugamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið...

Sjá meira

Metaðsókn á Með táninginn í tölvunni

Uppsetning Leikfélags Hólmavíkur á hinum sprellfjöruga gamanleik  Með táning í tölvunni eftir Ray Cooney hefur fengið fádæma góða aðsókn. Það er heimamaðurinn Arnar S. Jónsson sem leikstýrir og fara sjö leikarar með hlutverk í sýningunni og eru flestir þeirra að stíga sín fyrstu skref með leikfélaginu. Auk þeirra tekur annar eins fjöldi þátt í verkefnum á bak við tjöldin. Þrjár sýningar voru á Hólmavík um páskahelgina og þegar hafa rúmlega 300 hundruð manns séð sýninguna, sem lætur nærri að sé 80% af íbúafjölda á staðnum. Búið er að ákveða að næstu sýningar verði á Hólmavík laugardagana  7. maí og...

Sjá meira

Svefnlausi brúðguminn frumsýndur á Sauðárkróki

Á verkalýðsdaginn 1. maí frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann eftir Arnold og Bach. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson, sem einnig gerði nýja leikgerð af handriti og staðfærði þýðingu Sverris Haraldssonar. Sýningar verða í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Svefnlausi brúðguminn fjallar um nýgift hjón sem lenda óvæntri uppákomu í brúðkaupsferðinni. Eitthvað fara tengdaforeldrar brúðgumans að skipta sér af, en það kann ekki alltaf góðri lukku að stýra. Málin flækjast svo stig af stigi eins og góðum farsa sæmir, en enginn hlýtur þó varanlegan skaða af. Ríflega 30 manns hafa staðið í ströngu undanfarnar 8 vikur við að koma verkinu á...

Sjá meira

Sindri silfurfiskur gerir víðreist

Sunnudaginn 1. maí verður leikritið Sindri  silfurfiskur eftir Áslaugu Jónsdóttur í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar , sýnt í síðasta sinn í barnaleikhúsi Þjóðleikhússins, Kúlunni. Í sýningunni er beitt sérstakri ljósatækni til þess að skapa undraveröld hafsins og skrautlegir fiskar, stórir og smáir, synda fyrir augum áhorfandans. Þetta er undurfallegt ævintýri um að það sé allt í lagi að vera öðruvísi en aðrir, og vera sáttur við sjálfan sig eins og maður er. Sýningin hlaut tilnefningu til Grímunnar sl. ár og var sýnd á barnaleikhúshátíð í Svíþjóð vorið 2010, þar sem hún fékk frábærar viðtökur. Sindri syndir aftur til útlanda í...

Sjá meira

Einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ 29. apríl

Föstudaginn 29. apríl heldur Bandalag íslenskra leikfélaga einþáttungahátíð í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ, í tengslum við aðalfund Bandalagsins sem haldinn verður um helgina. Sex leikfélög sýna þar alls 10 einþáttunga sem vel flestir eru íslenskir. Að sýningum loknum munu gagnrýnendur fjalla um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis. Dagskrá einþáttungahátíðarinnar er eftirfarandi: Kl. 16.00Mæting í Bæjarleikhúsinu og hópferð að Gljúfrasteini. kl. 18.00Leikfélag HafnarfjarðarLifðu drauminneftir Gísla Björn HeimissonLeikstjóri: Halldór Magnússon HugleikurRotiðeftir Árna FriðrikssonLeikstjóri: Hörður S. Dan. Leikfélagið SýnirAfsakið, er þessi stóll upptekinneftir Guðrúnu Sóleyju SigurðardótturLeikstjóri: Ármann Guðmundsson Leikfélag SelfossTil heilla heimskra kvennaeftir Margaret AtwoodÞýðandi og leikstjóri: Guðfinna Gunnarsdóttir Leikfélag HafnarfjarðarTortímandinneftir Guðmund Lúðvík ÞorvaldssonLeikstjóri:...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert