Author: lensherra

Hvaða sýning fer í Þjóðleikhúsið?

Alls sækja 13 leikfélög með 16 sýningar um að koma til greina sem Athygliverðasta áhugaleiksýningin 2010-2011 og verða þar með boðið að sýna verkið í Þjóðleikhúsinu í lok leikárs. Niðurstöður valnefndar verða tilkynntar á hátíðarkvöldverð aðalfundar Bandalagsins í Mosfellsbæ laugardaginn 30. apríl nk. Valnefndina skipa þau Melkorka Tekla Ólafsdóttir leiklistarráðunautur, Stefán Hallur Stefánsson leikari og Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri. Sýningarnar sem sækja um eru: 1. Freyvangsleikhúsið – Bannað börnum2. Freyvangsleikhúsið – Góði dátinn Svejk3. Halaleikhópurinn – Góðverkin kalla!4. Hugleikur – Einkamál.is 5. Hugleikur – Helgi dauðans6. Leikdeild Umf. Íslendings – Með fullri reisn7. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja – Gaukssaga 8. Leikfélag...

Sjá meira

Starfsmannafélög bjóða á sýningu Leikfélags Sauðárkróks

Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir því að Starfsmannafélag Skagafjarðar og Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki bjóði félögum sínum á Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks. Býður Starfsmannafélag heilbrigðisstofnunarinnar einn miða en Starfsmannafélag Skagafjarðar býður sínu fólki tvo miða. Sýning Leikfélags Sauðárkróks í næstkomandi Sæluviku er gamanleikurinn Svefnlausi brúðguminn eftir Arnold og Bach, sem frumsýndur verður sunnudaginn fyrsta maí. Miðasala hefst með formlegum hætti í Kompunni þriðjudaginn eftir páska, en þangað til er hægt að kaupa miða, eða panta ef maður á boðsmiða, í síma 849-9434. Gert er ráð fyrir 8 sýningum svo það er um að gera að nýta sér kostaboð starfsmannafélaganna og...

Sjá meira

Leikfélag Sólheima og Verndarenglarnir

Æfingar á leikritinu Verndarenglarnir hjá Leikfélagi Sólheima eru nú í fullum gangi. Leikritið er samið sérstaklega fyrir Sólheima af Þórnýju Björk Jakobsdóttur sem leikstýrir einnig verkinu. Rauði þráðurinn í leikritinu er einelti og koma ýmsar furðuverur við sögu, svo sem álfar, tröll og huldufólk, ásamt verndarenglunum sem leikritið heitir eftir. Verkið verður frumsýnt á sumardaginn fyrsta, þann 21. apríl. Lárus Sigurðsson samdi tónlist við verkið en mikið er um söng og er leikritið við hæfi allra aldurshópa. Þess má geta að leikfélag Sólheima verður 80 ára í ár og er þar með eitt elsta starfandi áhugamannaleikfélag á landinu. Aðrir sýningardagar eru:Laugardaginn...

Sjá meira

Með táning í tölvunni frumsýnt á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Með táning í tölvunni á miðvikudaginn kemur, þann 20. apríl kl. 20 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Höfundur verksins er Ray Cooney, þýðinguna gerði Jón St. Kristjánsson og leikstjóri er Arnar S. Jónsson. Um er að ræða nútímalegt verk sem hefur allt til að bera sem prýðir góðan gamanleik. Sjö leikarar fara með hlutverk og eru nokkrir þeirra að stíga í fyrsta sinn á svið með leikfélagi Hólmavíkur. Auk leikaranna tekur fjöldi fólks þátt í undirbúningi á bak við tjöldin. Áformað er að þrjá sýningar verði á Hólmavík í páskavikunni og jafnvel ein til viðbótar í...

Sjá meira

Leikfélagið Peðið frumsýnir Hlátur

Á föstudaginn langa, 22. apríl kl.20.00, frumsýnir Leikfélagið Peðið nýjan íslenskan gamanleik sem hlotið hefur nafnið Hlátur. Handritið er eftir Kristinn Kristjánsson, Jón Benjamín Einarsson og Guðjón Sigvaldason í samvinnu við leikhópinn. Guðjón er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Sýnt verður í Gallerí Bar 46, við Hverfisgötu 46. Leikfélagið Peðið setti fyrir nokkrum árum í gang leikritasamkeppni, eða öllu heldur samkeppni um drög að leikriti, sem síðan skyldi útfæra / vinna með höfundi og leikstjóra og skyldi sýnt á vegum leikfélagsins. Nokkur drög bárust í keppnina og dómnefnd valdi drög Kristins Kristjánssonar, sem þau áhugaverðustu og var ætlunin að vinna meira...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert