Author: lensherra

Haustflensa Halaleikhópsins 21. og 23. október

Halaleikhópurinn verður með stuttverkadagskrá 21. og 23. okt. nk. sýnd verða 7 stuttverk. Þau eru 5 þættir úr Heilsugæslunni eftir Lýð Árnason, í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds Bjarna Þorkelssonar. Snyrting eftir Nínu Björk Jónsdóttur í leikstjórn Gunnars Gunnarssonar, Gunsó og Þanþol eftir Huldu B. Hákonardóttur líka í leikstjórn Gunsó. Halabandið flytur tónlist milli atriða. Sýnt verður föstudaginn 21. okt. kl. 20.00 og sunnudaginn 23. okt. kl. 17.00. í Halanum, Hátúni 12. Miðaverð er 1000 kr. en 500 kr. fyrir börn. Léttar veitingar verða seldar við innganginn. Miðasala er í síma 897-5007 og á netfangið midi@halaleikhopurinn.is Sjá nánar á...

Sjá meira

Af unglingum og fleira fólki… á Dalvík

Leiklistarhópur unglingadeildar Dalvíkurskóla frumsýnir nýtt leikverk föstudaginn 28. október næstkomandi í Ungó. Nefnist það Af unglingum og fleira fólki… og er eftir Arnar Símonarson og leikhópinn. Dalvíkurskóli og Leikfélag Dalvíkur eru nú enn og aftur í samstarfi í tengslum við leiklistarvinnu með unglingum í Dalvíkurbyggð. Er þetta í sjöunda sinn sem samstarf af þessu tagi er tekið upp. LD leggur fram æfingarhúsnæði til afnota í 8 vikur fyrir þessa vinnu, endurgjaldslaust og félagsmenn, auk foreldra nemenda aðstoða auk þess varðandi búninga, leikmuni og fleira.   Leiklist er kennd sem valgrein í 8.,9. og 10. bekk í Dalvíkurskóla og hvorki...

Sjá meira

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir Finnska hestinn

Föstudaginn 21. október klukkan 20 frumsýnir Leikfélag Fljótsdalshéraðs leikritið Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola. Leikstjóri er  Ásgeir Sigurvaldason en þýðingu verksins gerði Sigurður Karlsson. Sýnt er í Valaskjálf, Egilsstöðum og eru áætlaðar 8 sýningar. Finnski hesturinn gerist í nútímanum á sveitaheimili þar sem allt er komið í niðurníðslu og fjölskyldumunstrið eitthvað orðið sérkennilegt. En amma gamla man tímana tvenna. Gráni gamli skipti einu sinni máli, en skiptir hann máli núna?  Getur hann skapað bissnes núna? Leikfélag Fljótsdalshéraðs hélt uppá 45 ára afmælið sitt í lok ágúst s.l.  Að því tilefni var ákveðið að setja  upp metnaðafulla  afmælissýningu. Leikstjóri var...

Sjá meira

Rúi og Stúi á Selfossi

Föstudaginn 21. október frumsýnir Leikfélag Selfoss barna- og fjölskylduleikritið Rúi og Stúi eftir þá Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson. Um er að ræða æsifjörugt verk þar sem fara saman spenna, gleði, grín og söngur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason og stýrir hann kraftmiklum hópi leikara. Með hlutverk Rúa og Stúa fara Rakel Stefánsdóttir og Álfrún Björt Agnarsdóttir en þær stöllur slógu einmitt í gegn með eftirminnilegum hætti í barnaleikritinu Sjóræningjaprinsessan sem LS setti upp 2009. Miðapantanir eru í síma 4822787 og er fólki bent á að tryggja sér miða sem fyrst því sýningarfjöldi verður takmarkaður....

Sjá meira

Lokasýning Zombíljóða til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands

Lokasýning á Zombíljóðunum verður á Litla sviðinu föstudaginn 14. október. Það kostar ekkert inn á sýninguna en tekið verður á móti frjálsum framlögum til Fjölskylduhjálpar Íslands. Zombíljóðin eru nýtt verk úr smiðju Borgarleikhússins og Mindgroup. Á undan komu Þú ert hér og Góðir Íslendingar. Þremenningarnir sem stóðu að þeim verkum eru Jón Atli Jónasson, Jón Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson. Í þessari sýningu hafa þeir fengið liðsstyrk Halldóru Geirharðsdóttur sem skrifar og flytur verkið með þeim. Aldrei áður hefur manneskjan fengið jafn mikla vitneskju um harm annara en sjáum við í raun og veru hvort annað? Finnum við minna...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert