Author: lensherra

Hreinsun eftir Sofi Oksanen frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen á Stóra Sviðinu fimmtudaginn 27. október kl. 19:30. Hreinsun er einstaklega áhrifamikið verk um ást, grimmd og svik, og örvæntingarfulla baráttu manneskjunnar fyrir því að lifa af ofbeldi og niðurlægingu og verða heil að nýju. Leikstjóri er Stefán Jónsson.   Hreinsun er meðal umtöluðustu skáldverka undanfarinna ára. Leikritið var frumflutt í finnska Þjóðleikhúsinu árið 2007 og í kjölfarið skrifaði höfundurinn skáldsögu upp úr efni þess sem farið hefur líkt og eldur í sinu um Evrópu, víða orðið metsölubók og sankað að sér verðlaunum. Oksanen hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Hreinsun á liðnu ári....

Sjá meira

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Dagana 29. og 30. október verður haldið námskeiðið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari er Benedikt Axelsson lýsingahönnuður. En eru örfá pláss laus á námskeiðið. Kennt er laugardaginn 29. október og sunnudaginn 30. október frá kl. 9 – 15. Heildartími námskeiðs 18 kennslustundir/12 klukkustundir. Námskeiðsgjald: 27.500 kr. Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. Staðsetning: Tækniskólinn,...

Sjá meira

Allt í plati frumsýnt á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir í Bifröst barnaleikritið Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson þann 26. október næstkomandi. Í leikritinu galdrar Lína Langsokkur til sín persónur úr þekktum barnaleikritum, t.a.m. Mikka ref, Lilla klifurmús, Karíus og Baktus, Kasper, Jesper og Jónatan og Soffíu frænku. Tónlist spilar stóran þátt í leikritinu og sér Rögnvaldur Valbergsson um undirspil. Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir. Tólf leikarar stíga á stokk og sumir í fyrsta skiptið. Allt í plati er 20. barnaleikritið sem Leikfélag Sauðárkróks setur upp frá árinu 1984, en frá árinu 2000 hefur eitt slíkt verk verið sett upp á hverju hausti. Þrjú af fjórum...

Sjá meira

Eftir lokin frumsýnt í Tjarnarbíói

Þann 29. október frumsýnir leikhópurinn SuðSuðVestur leikritið Eftir lokin eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, í þýðingu Stefáns Halls Stefánssonar og Lilju Nætur Þórarinssonar. Stefán er jafnframt leikstjóri og Lilja Nótt leikur annað hlutverki á móti Sveini Ólafi Gunnarssyni. Sýnt er í Tjarnarbíói og hefjast sýningar kl. 20.00. Eftir Lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af togstreitu og spennu, ástandið er eldfimt og spurningin er: Þau lifðu hörmungarnar af en lifa þau af hvort annað? Leikararnir Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson hafa getið sér gott...

Sjá meira

Töfraflautan í Íslensku óperunni 22. október

Um komandi helgi verður merkisviðburður í sögu Íslensku óperunnar og óperuflutnings á Íslandi – en þá færir Íslenska óperan upp fyrstu óperusýningu sína í Eldborg í Hörpu. Á fjölunum í þessari fyrstu uppfærslu verður engin önnur en sjálf Töfraflautan eftir W.A. Mozart, sem hrifið hefur áhorfendur öll þau 220 ár sem liðin eru frá frumsýningu hennar í alþýðuleikhúsi í Vínarborg. Sýning Íslensku óperunnar nú er skipuð einvalaliði úr íslenskum tónlistarheimi sem leikhúsheimi. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og stjórnar hann nokkrum af fremstu söngvurum þjóðarinnar í þessu meistaraverki Mozarts. Aðrir listrænir aðstandendur sýningarinnar eru þau Ágústa Skúladóttir leikstjóri, Axel Hallkell...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert