Author: lensherra

Allt í plati á Króknum

Haustverkefni Leikfélags Sauðárkróks er barnaleikritið Allt Ì plati eftir Þröst Guðbjartsson. Leikarar eru 12 og sumir að stíga sín fyrstu skref á leiksviðinu. Leikstjóri er Íris Baldvinsdóttir. Stefnt er á frumsýningu í lok október. Í Allt í plati er farið inn í ævintýraheima þekktra barnaleikrita og er það Lína Langsokkur sem leiðir leikinn og kynnir til sögunnar persónur úr Kardemommubænum, Dýrunum Ì Hálsaskógi og þá Karíus og Baktus. Leikfélag Sauðárkróks sýndi styttri leikgerð af verkinu þann 17. júní 2003 þrisvar fyrir fullu húsi.  ...

Sjá meira

Námskeið í leiktækni

Leikfélag Kópavogs stendur fyrir námskeiði í leiktækni fyrir vana leikara dagana 8. 9. og 11. október. Leiðbeinandi er Rúnar Guðbrandsson. Námskeiðið hefst laugardaginn 8. okt. kl. 10.00. Enn eru nokkur laus pláss. Námskeiðið kostar 3.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en er ókeypis fyrir félaga í LK. Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst á lk@kopleik.is....

Sjá meira

Fúsi froskagleypir snýr aftur

Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hafið á ný sýningar á  barnaleikritinu  Fúsa Froskagleypi eftir Ole Lund Kirkegaard í Gaflaraleikhúsinu. Sýningin sló í gegn síðasta vetur og þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi í vor. Verkið er bráðfjörugt barna og fjölskylduleikrit með skemmtilegri tónlist Jóhanns Moravek undir leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um samskipti Fúsa froskagleypis við krakkana og bæjarbúana í Hafnarfirði og hvernig heimsókn Bardínó Sirkussins  til bæjarins breytir miklu í lífi allra. Leikfélag Hafnarfjarðar  fagnar nú í ár 75 ára afmæli sínu og var Fúsi froskagleypir fyrsta sýning  félagsins í  nýju  aðsetri félagsins í Gaflaraleikhúsinu. Miðaverð...

Sjá meira

Einkamál.is aftur á svið

Hugleikur mun þann 7. október nk. hefja á ný sýningar á  leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson. Leikritið var frumsýnt sl. vetur og fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda. Þegar sýningum var hætt í vor var uppselt flest sýningarkvöld. Sem fyrr er sýnt í húsnæði leikfélagsins að Eyjarslóð 9. Einkamál.is er dramatískur gamanleikur um samtímafjölskyldu í heimatilbúnum vanda. Hvað gerir barnelskur karl þegar hann kemst að því að einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að eignast ekki börn? Hann tekur málið auðvitað í sínar hendur, setur auglýsingu á einkamál.is og óskar eftir kynnum við konu sem væri til í að ganga með...

Sjá meira

Umóknareyðublað fyrir NEATA-hátíðina 2012

Aðildarfélög Bandalags ísl. leikfélaga geta sótt um að fara með sýningu á hátíðina. Þau sækja um til Bandalags ísl. leikfélaga fyrir 15. febrúar 2012 á eyðublöðum sem finna má hér. Upptökur af sýningum þurfa að fylgja umsóknum. Ef fleiri en ein sýning sækir um skipar stjórn Bandalagsins valnefnd sem velur sýningu. Hátíðin verður sú sjöunda í röð NEATA-leiklistarhátíða, að þessu sinni haldin í Sønderborg á Suður-Jótlandi dagana 31. júlí til 5. ágúst 2012. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi.   Hvert land má...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert