Author: lensherra

Metaðsókn hjá Hörgdælum

Leikfélag Hörgdæla tók hina geysivinsælu sýningu Með fullri reisn aftur til sýninga nú í haust og virðist ekki hafa verið vanþörf á því, það hefur verið mjög góð aðsókn og er nú uppselt á allar sýningar sem fyrirhugaðar eru á Melum. Síðan ætla leikfélagsmenn og -konur að halda í leikferð til Reykjavíkur. Verður leikritið sýnt á fjórum sýningum í Iðnó dagana 11. og 12. nóvember. Aðeins eru örfáir miðar eftir á þær sýningar og má finna þá á midi.is. Það stefnir í að heildarfjöldi áhorfenda verði vel yfir 4.000 á 44 sýningum. Þannig telst sýningin vera í hópi vinsælustu...

Sjá meira

Prenstsmiðjan Oddi gerist máttarstólpi Borgarleikhússins

Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri undirrituðu samstarfssamning á Stóra sviði Borgarleikhússins að viðstöddum leikurum og listrænum stjórnendum Kirsuberjagarðsins. Prentsmiðjan Oddi verður máttarstólpi Kirsuberjagarðsins, en aðrir máttarstólpar Borgarleikhússins eru Reykjavíkurborg, Valitor, VÍS, Íslandsbanki og Ölgerðin. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa fyrirtækin í landinu staðið þétt við bakið á Borgarleikhúsinu og hafa komið inn í starfið af miklum krafti. „Við erum hæstánægð að fá Odda til liðs við okkur sem máttarstólpa. Fyrirtækið er þekkt fyrir vandaða vinnu, á sér langa og merka sögu og er í stöðugri framþróun. Þetta eru eiginleikar sem tóna mjög vel við Kirsuberjagarðinn...

Sjá meira

Himnaríki í Ölfusi

Himnaríki Leikfélag ÖlfussLeikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Eftir að hafa farið villu vegar einhverstaðar á milli Hveragerðis og Vestmannaeyja í dálítinn tíma, römbuðum ég og betri helmingur minn loks inn í Ráðhúsið, þar sem Leikfélag Ölfuss sýnir þessa dagana Himnaríki eftir Árna Ibsen.  Höfðu heimamenn og aðrir velunnarar  nýlega slátrað einu lambi, fáeinum humarsræflum og saklausum rabarbarastöngli og stunduðu veisluvenjur eins og góðu óhófi gegnir. Köld eftir langa göngu frá bílnum að útidyrahurðinni horfðum við öfundaraugum á kræsingarnar og sáum strax að skemmtilegra hefði nú verið að sleppa hamborgaratuðrunni í bænum og mæta frekar aðeins fyrr í veislu fyrir sýningu,...

Sjá meira

Leikfélag Rangæinga æfir Vodkakúrinn

Leikfélag Rangæinga hefur hafið æfingar á leikritinu Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Þetta leikrit var frumflutt árið 2004 og voru þá leikararnir aðeins tveir, Helga Braga Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon og varð verkið gríðarlega vinsælt. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett upp af áhugamannaleikfélagi og ríkir spenna og eftirvænting í hópnum. Verkið verður sýnt í Njálsbúð og er stefnt á frumsýningu laugardaginn 12. nóvember n.k. Leikritið fjallar um Eyju sem hefur lengi átt í baráttu við aukakílóin og er hún leikin af Þórunni Elfu Stefánsdóttur. Í Vodkakúrnum fylgjumst við með...

Sjá meira

Kirsuberjagarðurinn frumsýndur í Borgarleikhúsinu

Kirsuberjagarðurinn, síðasta og mest leikna leikrit Antons Tsjekhovs verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 28. október. Verkið er af mörgum talið eitt besta leikverk allra tíma, angurvært stórvirki þar sem gaman og alvara vegast listilega á. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu en hann hlaut Grímuverðlaun fyrir síðustu uppsetningu sína, Fjölskylduna, sem gekk tvo vetur fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu. Þýðinguna gerði Árni Kristjánsson. Halla Gunnarsóttir hannar leikmynd og búninga en hún hlaut Grímuverðlaun fyrir leikmyndahönnun á síðasta leikári fyrir leikmynd sína í Strýhærða Pétri. Sigrún Edda Björnsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Rúnar Freyr Gíslason, Guðjón...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert