Author: lensherra

Síðustu sýningar á Múnkhásen

Nú eru einungis eftir fjórar sýningar af fjölskyldusýningunnni Ævintýri Múnkhásens eftir Sævar Sigurgeirsson sem sýnt er í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Sýningum lýkur þann 19. maí en á tveimur síðustu sýningunum mun Ylfa Mist Helgadóttir leysa Söru Blandon af sem eldfjallaguðinn Vúlkan o.fl. Ævintýri Múnkhásens er lygileg sýning fyrir alla aldurshópa, full af ólíkindum, glensi og leikhústöfrum sem fá fólk til að vantreysta eigin augum og hefur hlotið einróma lof gagnrýndenda og áhorfenda. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir   Síðustu sýningarnar verða:fimmtudaginn 3. maí kl. 18.00sunnudaginn 6. maí kl. 17.00 Uppseltlaugardaginn 12. maí kl. 14.00laugardaginn 19. maí kl. 14.00 Leikritið er...

Sjá meira

Blóðbræður sýndir á Akranesi

Um þessar mundir standa yfir sýningar á söngleiknum Blóðbræður, eftir Willy Russell, í Bíóhöllinni á Akranesi. Söngleikurinn var frumsýndur sl. laugardag og hefur fengið vægast sagt frábærar viðtökur áhorfenda. Verkið er sett upp af Vinum Hallarinnar að tilefni 70 ára afmæli Bíóhallarinnar á Akranesi sem og til að endurreisa leiklistarstarf áhugamannaleikhúss á Akranesi. Einar Viðarsson og Gunnar Sturla Hervarsson sáu um leikstjórn og Flosi Einarsson um tónlistarstjórn og hljóðupptökur. Blóðbræður fjalla í örstuttu máli um tvíburabræður sem margra barna móðir elur. Fyrir átti hún hóp af börnum, þannig að hún neyðist til að gefa annan soninn frá sér, sterkefnuðu...

Sjá meira

Stoppleikhópurinn sýnir Hústökuna

Laugardaginn 28. apríl sl. frumsýndi Stoppleikhópurinn Hústökuna, nýtt leikverk eftir Hrund Ólafsdóttur. Aðeins verður ein sýning til viðbótar og er hún í kvöld, miðvikudaginn 2. maí kl. 20.00. Leikstjórn og aðlögun fyrir leiksvið er í höndum Valgeirs Skagfjörð sem jafnframt semur tónlistina. Sýnt er í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi. Bakgrunnur verksins er búsáhaldabyltingin 2008-2009 en í verkinu segir frá ungum manni sem fellur fyrir stúlku sem brennur af hugsjónum um betri heim. Hann fer að mæta á mótmælafundi og starfa með aðgerðarsinnum, en þegar hópurinn sest að í auðu húsi leiða atvik til þess að lögreglumaður slasast...

Sjá meira

Beðið eftir Godot frumsýnt 5. maí

Tímamótaverk Samuel Beckett, Beðið eftir Godot, verður frumsýnt í flutningi Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins næstkomandi laugardag 5. maí. Árni Ibsen er þýðandi verksins og leikstjórn er í höndum Kristínar Jóhannesdóttur. Leikarar sýningarinnar eru pörupiltarnir Hannes, Smári, Nonni Bö og Dóri Maack og tveir drengir. Pörupiltar eru afsprengi Kvenfélagsins Garps sem stofnað var af nokkrum ungum leikkonum árið 2003 og slógu í gegn með uppistandi sínu Homo Erectus fyrr á þessu leikári. Beðið eftir Godot er eitt merkasta leikverk leiklistarsögunnar og olli straumhvörfum í sögu leikritunar. Leikritið lýsir biðinni eftir frelsun, björgun og leiðsögn og er áleitin lýsing á...

Sjá meira

Aukasýningar á Hringnum

Leikfélag Kópavogs sýndi nýtt íslenskt leikverk Hringinn í febrúar og mars síðastliðnum. Nú hefur verið ákveðið að bjóða upp á aukasýningar í byrjun maí. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Aukasýningar verða fim. 3. maí, fös. 4. maí og sun. 6. maí kl. 20.00. Hringurinn segir frá Evgeníu sem lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn knýja örlögin dyra hjá henni í mynd rykfallins lögfræðings. Erindi hans er að greina frá fráfalli föðurins sem hún aldrei kynntist og koma til hennar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert