Stoppleikhópurinn sýnir Hústökuna
Laugardaginn 28. apríl sl. frumsýndi Stoppleikhópurinn Hústökuna, nýtt leikverk eftir Hrund Ólafsdóttur. Aðeins verður ein sýning til viðbótar og er hún í kvöld, miðvikudaginn 2. maí kl. 20.00. Leikstjórn og aðlögun fyrir leiksvið er í höndum Valgeirs Skagfjörð sem jafnframt semur tónlistina. Sýnt er í Leikhúsinu við Funalind 2 í Kópavogi. Bakgrunnur verksins er búsáhaldabyltingin 2008-2009 en í verkinu segir frá ungum manni sem fellur fyrir stúlku sem brennur af hugsjónum um betri heim. Hann fer að mæta á mótmælafundi og starfa með aðgerðarsinnum, en þegar hópurinn sest að í auðu húsi leiða atvik til þess að lögreglumaður slasast...
Sjá meira


