Hringurinn í Þjóðleikhúsinu 22. júní
Leiksýning Leikfélags Kópavogs, Hringurinn varð að þessu sinni fyrir valinu sem athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins. Hún verður sýnd í Kassanum 22. júní nk. kl. 20.00 Aðeins er um eina sýningu að ræða. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur, leikstjóri er Hörður Sigurðarson, Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Fjölmargir aðrir leggja hönd á í sýningunni og þar á meðal eru 12 leikarar. Guðmann Þór Bjargmundsson sér um myndvinnslu, Rúna Sif Harðardóttir um förðun og að auki koma fjölmargir að smíði leikmyndar og leikmuna. Evgenía lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn...
Sjá meira


