Author: lensherra

Dúnn frumsýnt í Tjarnarbíói

Föstudaginn 14. september verður Dúnn frumsýndur í Tjarnarbíói. Dúnn er dansverk, gjörningur, tónverk, ljósverk og leikrit. Dúnn er sjónarspil. Höfundar og flytjendur eru Ásrún Magnúsdóttir og Berglind Pétursdóttir Umfjöllunarefnið stendur okkur mjög nærri en við ákváðum að þessu sinni að fjalla um tilvist mannsins og sólarinnar. Þetta tvennt tengist traustum böndum, þegar við byrjuðum að fjalla um tilvistina gátum við ekki látið sólina óafskipta. Tilvistarstefnunni helguðum við sjö daga af lífi okkar. Síðan byrjuðum við að misnota hana. Sólin fékk 20 mínútur en við vissum líka í grunninn hvað hún snýst um. Þegar maður er að fjalla um stór málefni...

Sjá meira

Pörupiltar í Hofi

Homo Erectus – Pörupiltar, standa upp í Menningarhúsinu Hofi 22. september. Leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir frumsýndu fyrir ári síðan uppistandið Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum. Kvöldið bar yfirskriftina Uppnám, fyrir hlé var uppistandið en eftir hlé tók við söngleikjadúettinn Viggó og Víóletta. Þetta uppistand var sérstakt að því leyti að leikkonurnar voru í karlmannshlutverkum. Nonni Bö, Hermann Gunnarsson og Dóri Maack voru uppistandararnir.  Þeir fóru yfir það helsta sem þeim lá á hjarta og óhætt að fullyrða að áhorfendur hafi kunnað að meta það. Þeir töluðu um heimspeki, hreingerningar, gríska goðafræði, konur,...

Sjá meira

Ungleikur í Borgarleikhúsinu

Ungleikur var stofnaður í þeim tilgangi að gefa ungum skáldum og leikurum vetvang til þess að sýna vinnu sína. Meginmarkiðið er að efla leikritun og leiklist ungra Reykvíkinga og tekið er við innsendum leikritum frá ungum skáldum (16-25 ára) sem verða sett upp sem sýning í Borgarleikhúsinu þann 6. nóvember næstkomandi. Umsóknarfrestur leikskálda er til 15. september. Leikritin þurfa að vera 8-15 blaðsíður að lengd. Sendið leikritin á netfangið ungleikur@gmail.com Áheyrnaprufur fyrir leikarana verða auglýstar þegar nær dregur. Ungleikur verður nýr og spennandi dagskráliður á Unglist í Reykjavík. Skúffuskáld Reykjavikur sameinist! Fylgist með á Facebook síðu Ungleik:...

Sjá meira

Trúðleikur í Gaflaraleikhúsinu

Frystiklefinn, litla atvinnuleikhúsið á Rifi á Snæfellsnesi, sýnir í samvinnu við Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði hinn sprellfjöruga og hjartnæma gamanleik Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason sem sló í gegn í sumar hjá gagnrýnendum og áhorfendum. Sýningarfjöldi er takmarkaður en sú fyrsta er 15. september kl. 14.00 Leikarar eru Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson, leikstjóri er Halldór Gylfason. Þeir Skúli og Spæli eru trúðar sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neinn annan starfa, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og gosbrunni. Spæli er...

Sjá meira

Leikhúslýsing fyrir áhugaleikhús

Dagana 6. og 7. október verður námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús haldin í Tækniskólanum. Kennd eru helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Kennari er Benedikt Þór Axelsson, lýsingahönnuður. Tími:6. október -laugardagur    9.00-15.007. október – sunnudagur    9.00-15.00Alls 12 klukkustundir / 18 kennslustundir Námskeiðið er í samvinnu við Raftækniskólann. Námskeiðsgjald: 29.500 kr.Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (gamli Sjómannaskólinn), Hátíðarsalur 2. hæð til...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert