Author: lensherra

Harmur, hundar og hýrar konur í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs frumsýnir næstkomandi fimmtudag, 10. janúar, Harmur, hundar og hýrar konur. Hér er á ferðinni dagskrá úr fjórum leikþáttum, innlendum og erlendum. Þættirnir eru Arfurinn eftir Örn Alexandersson, Samtal fyrir eina rödd og Við höfum allar sömu sögu að segja eftir Dario Fo og Franca Rame og Girnd á Geirsnefi eftir Dennis Schebetta. Örn Alexandersson leikstýrir eigin þætti en Hörður Sigurðarson hinum en alls taka 10 leikarar þátt í uppfærslunni.   Miða má kaupa á...

Sjá meira

Nanna systir sýnt í Lyngbrekku

Leikdeild Skallagríms setur upp gamanleikinn Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar. Eins og undanfarin ár sýnir Leikdeildin í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum og verður frumsýning á verkinu þann 11. Janúar næstkomandi. Tíu manna hópur leikara stendur á sviði að þessu sinni og eru það að miklu leiti andlit sem fólk ætti að kannast við frá síðustu árum, þó alltaf sé að sjálfsögðu reynt að koma nýju fólki að. Fyrsti samlestur var þann 14. október og byrjaði æfingartímabilið frekar rólega þetta árið, fyrstu vikurnar var æft þrisvar í viku en svo fjölgaði æfingum smám...

Sjá meira

Stundarbrot frumsýnt á Nýja sviðinu

Stundarbrot, nýtt íslenskt verk eftir Leif Þór Þorvaldsson verður frumsýnt á Nýja sviðinu 8. janúar næstkomandi. Þetta er verk á mörkum vísinda, leikhúss og dans. Framsækið sviðslistaverk sem notar viðgangsefnið til þess að skapa ógleymanlega sjóræna upplifum fyrir áhorfendur. Í Stundarbroti er fjallað um tímann – hann teygður, beygður og afmyndaður með aðferðum leikhússins þar til skynjunin er sprengd í loft upp og skilin eftir í tætlum. Leifur Þór Þorvaldsson semur og leikstýrir verkinu, en hann hlaut mikið lof og Grímutilnefningu fyrir verk sitt Endurómun árið 2009. Lydia Grétarsdóttir semur tónlist og dansarar í verkinu eru þær Ásrún Magnúsdóttir,...

Sjá meira

Gleðilegt ár!

Bandalag íslenskra leikfélaga sendir aðildarfélögum sínum, viðskiptavinum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleði og farsæld á nýju ári og þakkar samskiptin á því liðna. Þjónustumiðstöðin verður opin að venju frá 9.00 til 13.00 alla virka daga og síðdegis eftir...

Sjá meira

Karíus og Baktus í Kúlunni

Þjóðleikhúsið heldur upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners með því að setja á svið tvö af hans vinsælustu leikritum, Dýrin í Hálsaskógi á Stóra sviðinu og Karíus og Baktus í Kúlunni.  Frumsýning á Karíusi og Baktusi verður í Kúlunni 29. desember. Leikstjóri er Selma Björnsdóttir og það eru Ágústa Eva Erlendsdóttir og Friðrik Friðriksson sem fara með hlutverk litlu skrattakollanna. Karíus og Baktus eru pínulitlir tannálfar sem hafa komið sér fyrir í munninum á drengnum Jens. Þar lifa þeir sældarlífi, enda er Jens helst fyrir að borða allskyns sætindi og hann notar tannburstann lítið. En þessir tveir hrappar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert