Author: lensherra

Úthlutað úr Egner-sjóðnum á sunnudaginn

Nú á sunnudaginn verður fimmtugasta sýning á Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu og í lok hennar verða afhentir styrkir úr Egner-sjóðnum. Jafnframt er von á 25 þúsundasta gestinum á sýninguna. Í ár er haldið upp á 100 ára afmæli Thorbjörns Egners í Þjóðleikhúsinu með margvíslegum hætti. Tvö af leikritum hans eru í sýningu um þessar mundir en auk Dýranna í Hálsaskógi eru þeir bræður Karíus og Baktus að gera garðinn frægan í Kúlunni. Egner-sjóðurinn var stofnaður árið 1975  á 25 ára afmæli Þjóðleikhússins.  Þá heimsótti Thorbjörn Egner leikhúsið og gaf því sýningarrétt og höfundarlaun verka sinna á Íslandi. Tekjur...

Sjá meira

Lokasýning á Harmi, hundum og hýrum konum

Lokasýning verður á næstunni á leikdagskránni Harmi, hundum og hýrum konum hjá Leikfélagi Kópavogs laugardagardaginn 19. janúar  kl. 20.00. Leikdagskráin samanstendur af fjórum leikþáttum, innlendum og erlendum. Þættirnir eru Arfurinn eftir Örn Alexandersson, Samtal fyrir eina rödd og Við höfum allar sömu sögu að segja eftir Dario Fo og Franca Rame og Girnd á Geirsnefi eftir Dennis Schebetta. Örn Alexandersson leikstýrir eigin þætti en Hörður Sigurðarson hinum en alls taka 10 leikarar þátt í uppfærslunni. Athugið að ekki er mælt með dagskránni fyrir yngri en 12 ára.   Miða má kaupa á: https://www.midakaup.is/kopleik/harmur-hundar-og-hyrar-konur. Leikarar í dagskránnin eru: Arfurinn: Anna...

Sjá meira

Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur

Langar þig að spreyta þig á leiksviði? Viltu láta gamlan draum rætast? Viltu taka þátt í liststarfi þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum? Í janúar og febrúar býður Leikfélag Kópavogs upp á leiklistarnámskeið sem er aðallega hugsað fyrir byrjendur og styttra komna í leiklist. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi er Hörður Sigurðarson sem hefur starfað sem leikstjóri hjá leikfélögum víða um land en þó aðallega hjá Leikfélagi Kópavogs undanfarin ár.  Námskeiðið sem er ætlað 21 árs og eldri, hefst miðvikudaginn 23. janúar og verður í sex skipti fram til 11. febrúar sem hér segir: Mið....

Sjá meira

Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 12. janúar verður Skoppa og Skrítla í leikhúsinu frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Skoppa og Skrítla í leikhúsinu var fyrsta leiksýning þeirra vinkvenna. Hún var frumsýnd 2006 í Þjóðleikhúsinu og gekk fyrir fullu húsi í nær 100 skipti. Sýningin fór í margar leikferðir erlendis m.a nokkrum sinnum til Bandaríkjanna, Danmerkur og til Afríku. Síðan hefur margt á dagana drifið hjá þeim vinkonum. Leikritin eru orðin þrjú, þáttaraðirnar orðnar fjórar, bíómynd, DVD diskar, geisladiskar og ýmislegt fleira. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson en handrit gerðu Hrefna Hallgrímsdóttir og leikhópurinn. Í sýningunni er fjallað um flest það sem börn á leikskólaaldri fást við...

Sjá meira

Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu

Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið frumsýna þann 12. janúar nýtt íslenskt verk sem heitir Hjartaspaðar. Í þessu verki er farið alveg nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið fjallar um drephlægileg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki búið eftir áttrætt. Grímur og Hannes hafa verið félagar á dvalarheimilinu um nokkra hríð og dagleg rútína þeirra er fyrir löngu komin í fastar skorður. Þegar Gréta flytur inn umturnast líf þeirra og fyrr en varir hefjast óborganleg uppátæki til að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert