Author: lensherra

Lokað um hátíðirnar

Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga Kleppsmýrarvegi 8 verður lokuð frá kl. 13.00 föstudaginn 22. desember og til miðvikudagsins 2. janúar. Bandalag íslenskra leikfélaga óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar samskiptin á árinu sem er að...

Sjá meira

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins – Macbeth

Nú líður að jólafrumsýningu Þjóðleikhússins á Macbeth eftir Shakespeare í leikstjórn hins eftirsótta leikstjóra Benedicts Andrews, og bíða margir með eftirvæntingu eftir að fá að sjá sýninguna. Eitt magnaðasta leikrit heimsbókmenntanna, Macbeth, er jólasýning Þjóðleikhússins. Rétt eins og undangengin 62 ár er jólafrumsýningin á annan dag jóla og markar einn af hápunktum menningarlífsins. Sýningin á Macbeth verður engin undantekning og er um sannkallaða hátíðarsýningu er að ræða. Frumsýningin verður 26. desember. Því er spáð fyrir herforingjanum Macbeth að hann eigi eftir að verða konungur Skotlands. Hvattur áfram af eiginkonu sinni myrðir hann konunginn og sest sjálfur í hásætið. En ódæðið...

Sjá meira

Mýs og menn á Stóra sviðinu

Jólasýning Borgarleikhússins, Mýs og menn, verður frumsýnd á Stóra sviðinu laugardaginn 29. desember næstkomandi. Hér er sögð saga farandverkamannanna George og Lennie sem flakka saman á milli vinnustaða, vinna til að lifa af og þrauka en deila saman fjarlægum draumi um betra líf. En suma drauma þarf að gjalda dýru verði. Steinbeck skrifaði sjálfur leikritið, en Jóhann Sigurðsson þýddi. Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir. Þetta meistaravek John Steinbeck frá krepputímum þriðja áratugarins er löngu orðið sígilt. Hann varpar fram spurningum um hvaða mat við leggjum á manneskjuna og hvert gildi hennar er þegar hún virðist ekki vera neinum til gagns....

Sjá meira

Leikfélag Selfoss æfir Þrek og tár

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á leikritinu Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur.  Þrek og tár var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og er hvort tveggja fjölskyldusaga og þroskasaga ungs manns á 7. áratug síðustu aldar.  Leikritið innheldur mikið af söngvum sem margir hverjir eru löngu orðnir landskunnir. Alls taka 18 leikarar þátt í sýningunni og eru þeir á aldrinum 13 – 66 ára. Stefnt er að frumsýningu í síðari hluta janúar....

Sjá meira

Nóttin var sú ágæt ein í Tjarnarbíói

Leikfélagið Óskabörn ógæfunnar frumsýnir mánudaginn 17. desember leiksýninguna Nóttin var sú ágæt ein, jólasýningu fyrir fullorðna. Höfundur verksins er Anthony Neilson (Penetreitor, Ófagra veröld) en verkið kallast á frummálinu The Night Before Christmas. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson, en hann þýddi og staðfærði verkið ásamt Hirti Jóhanni Jónssyni. Sýningin, sem sýnd er í Tjarnarbíói, er aðeins rétt rúmur klukkutími að lengd. Sýningardagar eru 17. 18. og 20. desember. Verkið fjallar tvo félaga sem góma innbrotsþjóf á aðfangadagskvöldi, klukkutíma fyrir jól. Þjófurinn heldur því statt og stöðugt fram að hann sé raunverulegur jólasveinn. Þeir halda honum föngnum til að draga...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert