Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið frumsýna þann 12. janúar nýtt íslenskt verk sem heitir Hjartaspaðar. Í þessu verki er farið alveg nýjar slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í fullri lengd. Verkið fjallar um drephlægileg uppátæki eldri borgaranna á dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki búið eftir áttrætt.

Grímur og Hannes hafa verið félagar á dvalarheimilinu um nokkra hríð og dagleg rútína þeirra er fyrir löngu komin í fastar skorður. Þegar Gréta flytur inn umturnast líf þeirra og fyrr en varir hefjast óborganleg uppátæki til að lífga upp á tilveruna og drepa leiðindin þar sem öllum brögðum er beitt.

Leikstjóri sýningarinnar er Ágústa Skúladóttir sem hefur sett mark sitt á íslenskt leikhúslíf með uppsetningum sínum á Grímusýningunum Klaufum og kóngsdætrum og Bólu Hjálmari, Dýrunum í Hálsaskógi, óperunni Töfraflautunni eftir Mozart sem var opnunarsýning Íslensku Óperunnar í Hörpu og hinnar óviðjafnalegu fjölskyldusýningu Ævintýri Múnkhásens sem sem Gaflaraleikhúsið sýndi við miklar vinsældir á síðasta ári. Hún hefur í liði með sér leikarana Aldísi Davíðsdóttur, Orra Huginn Ágústsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson og Álfrúnu Gísladóttur aðstoðarleikstjóra ásamt ljósahönnuðinum Sune Joenssen sem fékk Grímutilnefningu á síðasta ári fyrir bestu lýsinguna í Ævintýrum Múnkhásens.

Saman hafa þau skapað ákaflega sjónræna sýningu þar sem grímuleikur og hreyfingar miðla sögunni en ekki töluð orð. Þetta er draumkenndur óður til elliáranna, fullur af töfrum og ólíkindahætti sem allir geta notið, óháð tungumáli, heyrnartækjum og göngugrindum. Aðeins eru fyrirhugaðar fjórar sýningar á þessu einstaka verki sem kynnir nú í fyrsta skipti þetta form leiklistar fyrir íslendingum. Í tilefni inntaks og persóna verksins fá ellilífeyrisþegar sérstakan afslátt af miðaverði. Nánari upplýsingar í síma 565 5900 eða á gaflaraleikhusid.is