Borgarleikhúsið býður leikskólabörnum í heimsókn
Öllum börnum í leikskólum Reykjavíkur fæddum árið 2008 er boðið í Borgarleikhúsið í vikunni. Kynning á undraveröld leikhússins verður haldin á Stóra sviðinu kl 10.00 alla morgna frá mánudegi til fimmtudags. Nýstofnuð fræðsludeild leikhússins, með Ástrósu Elísdóttur í forsvari, stendur fyrir heimsóknunum. Hátt á annað þúsund fimm ára barna munu heimsækja Borgarleikhúsið í vikunni. Þau munu fá innsýn í starfsemi leikhúss og fylgjast með starfsmanninum Lalla, sem er upptekinn við að leita að flugdreka fyrir næstu sýningu á Mary Poppins, en tekur þeim opnum örmum og veitir þeim innsýn í störf leikhússins og undirbúning leiksýningar. Þá skjóta Skoppa og...
Sjá meira


