Átta nýir heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur
Aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur var haldinn fyrir skömmu. Á fundinum lét Inga Jóna Þórðardóttir af formennsku í félaginu, sem hún hefur gegnt í rúm níu ár. Í máli hennar kom fram að aðsókn hafi aldrei verið meiri en undanfarin ár og að síðasta rekstrarár hefði verið það stærsta í sögu félagsins, en þá fór veltan í fyrsta sinn yfir milljarð króna. Starfsmenn Borgarleikhússins eru að jafnaði 130 talsins. Rekstrarframlag borgarinnar nam um 45% af veltu og sjálfsaflafé 55%. Hærra hlutfall sjálfsaflafjár er vandfundið hjá menningarstofnunum, hvort sem er hér á landi eða í nálægum löndum. Afgangur varð af rekstri félagsins...
Sjá meira


