Jóreykur leiklesið í Tjarnarbíói
Leikritið Jóreykur í leikstjórn Þorsteins Bachmann verður leiklesið í Tjarnarbíó miðvikudaginn 20. nóvember. Leikarar eru Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Svandís Dóra Einarsdóttir, Þorbjörg Helga Dýrfjörð og Steinþór Hróar Steinþórsson (Steindi Jr.). Frítt er inn á leiklesturinn og aðgangur öllum opinn. Leiklesturinn hefst stundvíslega kl. 20 og tekur rúma klukkustund. Sjá einnig: http://www.joreykur.blogspot.com/ Um er að ræða nýtt íslenskt verk. Höfundur er Bergur Ebbi Benediktsson. Verkið fjallar um hestamanninn Hallgrím Björn Þórðarson (Steindi Jr.) sem er fyrsti íslenski gullverðlaunahafinn á ólympíuleikum, en við heimkomu hans til Íslands fer af stað atburðarás sem setur íslenska þjóðarvitund í nýtt (en þó kunnuglegt) samhengi. Þetta verður gaman – örugglega áhugavert –...
Sjá meira


