Augasteinn í Tjarnarbíói
Leikhópurinn Á senunni undirbýr nú sýningar á leiksýningunni Ævintýrið um Augastein, sem frumsýnd var fyrir 11 árum. Í fyrra urðu kynslóðaskipti í sýningunni, því Orri Huginn Ágústsson tók þá við af Felix Bergssyni, sem hafði borið hana uppi frá byrjun. Tvær sýningar verða um næstu helgi, laugardaginn 14. og sunnudaginn 15. desember kl. 15:00. Sýnt er í Tjarnarbíói. Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London 2002, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Þá kom ævintýrið einnig út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda æ...
Sjá meira


