Lísa og Lísa, Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Rýminu
Þær Lísa og Lísa, leiknar af hinum ástsælu akureyrsku leikkonum Sunnu Borg og Sögu Geirdal Jónsdóttur, eru komnar á sjötugsaldurinn og hafa búið saman í þrjátíu ár – hálfvegis í felum. Fyrir atbeina ungs leikskálds hafa þær nú tekið ákvörðun um að koma út úr skápnum og segja sögu sína á leiksviði. Einlægt og meinfyndið leikrit. Nýtt írskt verðlaunaverk. Amy Conroy leikkona, leikstjóri og skáld er búsett í Dyflinni. Hún hlaut verðlaun Dublin Fringe-hátíðarinnar 2010 fyrir leikritið um Lísurnar tvær og var tilnefnd til írsku leiklistarverðlaunanna 2012, bæði sem höfundur og leikkona. Jón Gunnar útskrifaðist með BA í leikstjórn...
Sjá meira


