Author: lensherra

Freyvangsleikhúsið frumsýnir Þorsk á þurru landi

Freyvangsleikhúsið frumsýnir leikritið Þorskur á þurru landi í Freyvangi 20. febrúar nk. Þorskur á þurru landi er farsi frá árinu 2005 eftir þá Karl Tiedemann og Allen Lewis Rickman. TItill á frummáli Off the Hook. Persónur leiksins eru átta en þátttakendur í heild eru rúmlega 20 manns. Daníel Freyr Jónsson þýddi og leikstýrir. Benedikt Axelsson sér um ljós, Þorsteinn Gíslason um leikmynd og Anna Bryndís Sigurðardóttir um búninga. Þorskur á þurru landi gerist á mæðradaginn árið 1958. Sir Evelyn Carstairs, breski sendiherrann við Sameinuðu þjóðirnar, hefur eytt kvöldinu á undan í að þjóra með Dag Hammarskjöld, aðalritara Sameinuðu þjóðanna,...

Sjá meira

Barið í brestina, frumsýning í Aratungu 14. febrúar

Leikdeild Umf. Biskupstungna æfir nú af fullum krafti gamanleikinn Barið í brestina, eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson en þetta er sjöunda uppfærsla hans hjá félaginu. 
Leikritið er ærslafullur gamanleikur með söngívafi. Alls koma að uppsetningunni um 20 manns, 14 leikarar, smiðir, hvíslari og ljósamaður.Frumsýnt verður í Aratungu föstudaginn 14. febrúar. Leikritið, sem gerist á sambyggðri heilsugæslustöð og elliheimili á einum degi, segir frá lífi fólksins sem þar býr og starfar. Hvernig það leysir vandamál sem upp koma. Allt gengur sinn vanagang þar til að einn daginn fréttist að velferðaráðherrann ætli að koma í óvænta heimsókn til að...

Sjá meira

Pörupiltar á kafi í kynlífi

Miðvikudaginn 12. febrúar frumsýna Pörupiltar í samstarfi við Borgarleikhúsið Kynfræðslu Pörupilta á Litla sviði Borgarleikhússins. Pörupiltar eru mættir aftur til leiks eftir velgengni Homo Erectus sem sýnt var í Þjóðleikhúskjallaranum í tvo vetur og fór sú sýning út fyrir landsteinana.  Nú eru þeir strákarnir komnir í kynlífið og ætla að fræða unglinga og fullorðna. Öllum 10. bekkingum í Reykjavík er boðið á sýninguna og munu þeir fylla salinn næstu tvær vikurnar. Sagan Strákarnir  Dóri Maack, Nonni Bö & Hermann Gunnarsson hafa lengi verið á atvinnuleysisbótum en þeir kynntust á sjálfstyrkingarnámskeiði hjá Vinnumálastofnun. Núna eiga þeir á hættu að missa...

Sjá meira

Trúðanámskeið í Tjarnarbíói

Trúðanámskeið verður haldið í febrúar í Tjarnarbíói. Kennari er Sólveig Guðmundsóttir en hún hefur unnið mikið með trúðatækni sl. ár. Farið verður í grunn-tækniæfingar, hver þátttakandi mun þróa sinn trúð og vinna með trúðinn sinn í gegnum spuna og leiki. Þetta er tækni sem nýtist bæði í leik og starfi – leikarar skerpa verkfæri sín í spunavinnu og hlustun og kennarar finna oft nýjar leiðir til að vinna kennsluefni. Gleði og gaman! Námskeiðið verður 3 x 3 tímar dagana: Mánudaginn 17. febrúar kl. 18.00 til 21.00Þriðjudaginn 18. febrúar kl. 18.00 til 21.00Miðvikudaginn 19. febrúar kl.18.00 til 21.00 Kennari: Sólveig Guðmundsdóttir...

Sjá meira

Leikhússpjall í Tjarnarbíói

Núna um helgina mun gestum Tjarnarbíós gefast kostur á að ræða við leikara og aðstandendur sýninga um innihald og upplifun þeirra af verkinu. Um ræðir leikhússpjall um Lúkas laugardagskvöldið 8. febrúar og um Eldklerkinn sunnudagskvöldið 9. febrúar. Sýningarnar hefjast kl. 20, en verður lokið um 21:30. Þá hefst leikhússpjallið. Leikhússpjall Tjarnarbíó er kjörið tækifæri til eiga notalega kvöldstund sem hefst á leiksýningu, því næst góðar umræður við aðstandendur sýningarinnar, og í framhaldinu er kaffihús Tjarnarbíó opið og góð tilboð í gangi. Eftir sýningu á Lúkasi munu Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Friðriksson, sem fara með hlutverk í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert