Author: lensherra

Skilaboðaskjóðan frumsýnd á Hólmavík

Óhætt er að segja að félagsheimilið á Hólmavík hafi iðað af tónlist, lífi, leik og fjöri undanfarnar vikur en þar hafa mætt ýmsar furðupersónur til að taka þátt í Skilaboðaskjóðunni, en hún verður frumsýnd laugardaginn 5. apríl. Þetta skemmtilega verk er eftir Þorvald Þorsteinsson og tónlist eftir Jóhann G. Jóhannsson og var frumflutt í Þjóðleikhúsinu 1993. Uppsetningin er í samstarfi Grunn- og tónskólans á Hólmavík og Leikfélags Hólmavíkur og er þetta 6. samstarfsverkefnið frá árinu 2000. Leikstjóri er Esther Ösp Valdimarsdóttir og tónlistarstjórn er í höndum Hildar Heimisdóttur. Leikarar eru fjölmargir nemendur úr 8.-10 bekk grunnskólans og úr dreifnámsdeild...

Sjá meira

Vorið vaknar hjá L.M.A.

Leikfélag menntaskólans á Akureyri frumsýninr rokksöngleikinn Vorið Vaknar eftir Duncan Shaeik og Steven Sater. Söngleikurinn er byggður á leikritinu Vorið Vaknar eftir Frank Wadekind fráárinu 1891. Auðrún Aðalsteinsdóttir og Emilía Baldursdóttir þýddu verkið og leikstjóri er Jón Gunnar.     Í söngleiknum eru tuttugu lög, kóratriði og stór dansatriði. 12 manna hljómsveit er á sviðinu og alls taka yfir 60 manns þátt í sýningunni.Verkið fjallar um unglinga sem eru að uppgötva kynferði sitt og í senn að reyna fóta sig í heimi fullorðinna seint á 19. öld. Í leikritinu er fjallað um ýmis málefni sem þótti erfitt að ræða...

Sjá meira

Leikfélag Hofsóss frumsýnir Blúndur og blásýru

Föstudaginn 4. apríl kl. 20 frumsýnir Leikfélag Hofsóss gamanleikinn Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Höfðaborg. Alls taka 11 leikendur þátt í sýningunni og leikstjóri er Ármann Guðmundsson. Leikritið fjallar um leiklistargagnrýnanda sem kemst að því sér til mikillar skelfingar tvær eldri frænkur hans hafa stundað það af góðmennsku sinni að eitra fyrir einmanna eldri mönnum og jarða þá síðan í kjallaranum hjá sér. Til að flækja málin er hann nýbúinn að biðja unnustu sinnar þegar hann kemst að þessu auk þess sem sérdeilis illa innrættur bróðir hans stingur upp...

Sjá meira

Uppsprettan; Opnar leikæfingar í Tjarnarbíói

Uppsprettan verður haldin í annað sinn í Tjarnarbíói mánudaginn 7. apríl.Formið er þannig að leikarar og leikstjórar fá ný stuttverk til að vinna með sólarhring fyrir sýningu. Þau hafa því einungis þennan eina sólarhring til að kynna sér handritið og átta sig á möguleikum þess. Þremur tímum fyrir sýningu hittast listamennirnir í fyrsta sinn og byrja æfingar. Æfingarnar eru opnar almenningi. Frá kl. 18.00-21.00 geta gestir komið í Tjarnarbíó og kíkt inn á þær æfingar sem eru í húsinu, velt fyrir sér vinnuaðferðum og ákvarðanatökum í sambandi við verkið, jafnvel lesið verkin sjálfir og velt þeim fyrir sér. Inn...

Sjá meira

Málþing um einhverfu í Borgarleikhúsinu 5. apríl kl 17

Opið málþing um einhverfuróf á Stóra sviðinuHaldið í tilefni af Alþjóðlegum degi einhverfu (2. apríl) og í tengslum við sýninguna Furðulegt háttalag hunds um nóttFjórir fyrirlestrar – Dr. Evald Sæmundsen, Jarþrúður Þórhallsdóttir, Laufey I. Gunnarsdóttir og Ingibjörg Elsa Björnsdóttir og pallborðsumræður að þeim loknumUmræður um kvöldið í kjölfar sýningará Furðulegu háttalagi hunds um nótt með aðstandendum verksins Næstkomandi laugardag kl 17 standa Einhverfusamtökin og Borgarleikhúsið fyrir málþingi um einhverfu á Stóra sviðinu. Málþingið er haldið í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu (sem er 2. apríl) og í tengslum við sýninguna Furðulegt háttalag hunds um nótt sem fjallar um einstakan...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert