Ungmennin í LÖ frumsýna Loka Laufeyjarson
Unglingadeild Leikfélags Ölfuss hefur síðan í mars æft nýtt leikverk sem nefnist Loki Laufeyjarson og er eftir þau Gísla Björn Heimisson, Guðmund Lúðvík Þorvaldsson og Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson en hann leikstýrði uppsetningu félagsins í haust á leikritinu Makalausri sambúð eftir Neil Simon. Frumsýnt verður í Versölum mánudaginn 26. maí kl. 18:00 og 2. sýning verður miðvikudaginn 28. maí kl. 20:00. Aðeins er um þessar tvær sýningar að ræða. Miðaverð er kr. 500 og verða miðar seldir við innganginn. Upphaflega var farið af stað með námskeið fyrir unglinga og hófst það um það leyti sem...
Sjá meira


