Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Kryolan Concealer Circle, hyljarar í 6 lita 40 gr. dósum, framleiddir í mörgum mismunandi samsetnngum. Hyljararnir eru mjög þekjandi og eru notaðir til að hylja bauga, bólur og önnur lýti á húð fyrir förðun. Dósin kostar kr. 5.700.- Leikhúsbúiðn er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is   Hér að neðan eru þær litasamsetningar sem framleiddar eru, núna eigum við á lager númer 1, 2, 3, 4 og 6 (ekki á mynd en mjög svipað nr. 5). Innihaldslýsing og nánari upplýsingar:...

Sjá meira

Skráningar hafnar í Leiklistarskóla LA

Skráningar eru hafnar í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar vegna vorannar. Það er einvalalið kennara sem mun starfa við skólann og ásamt hinni reglubundnu kennslu munu nemendurnir kíkja á æfingar á uppsetningu Lísu í Undralandi og vera í návígi við listamennina sem að sýningunni koma. Kennarar verða : Benedikt Karl Gröndal, leikari, Brogan Davison, danshöfundur, Margrét Sverrisdóttir, leikkona, Pétur Ármannsson, leikari og Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona. Markmið skólans er að gefa ungu fólki tækifæri til að þroska og þróa aðferðir til að beisla sköpunarkraft sinn og beina honum í listrænan farveg. Áhersla er á sviðslistir í sem víðastri merkingu. Umsóknarfrestur til að sækja um nám...

Sjá meira

Jóladagatal Leikfélags Hólmavíkur

Leikfélag Hólmavíkur birtir jólaleikritið Jóladagatalið í útvarps/netútgáfu núna fyrir jólin. Stykkið var upphaflega samið og sýnt fyrir jólin 1989.  Þættirnir eru 13 og koma eins og jólasveinarnir, einn á dag á vef Leikfélagsins næstu daga....

Sjá meira

Æfingar hefjast á Billy Elliot

Í vikunni hófust æfingar á stórsýningunni Billy Elliot. Sýningin er sú stærsta sem Borgarleikhúsið hefur sett upp en 68 listamenn taka þátt í henni, það eru 33 börn, 24 fullorðnir og 11 hljómsveitarmeðlimir. Frumsýning er áætluð 5. mars. Þrír glæsilegir ungir dansarar deila aðalhlutverkinu og hafa verið í hörðu dansnámi síðastliðna 8 mánuði undir stjórn breskra kennara. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.   Söngleikurinn um Billy Elliot var frumsýndur á West End í London árið 2005 og hefur vakið gríðarlega athygli um víða veröld. Sýningin hlaut mikið lof og fjölda verðlauna og er nú loksins komin í Borgarleikhúsið undir...

Sjá meira

Hættuför í Huliðsdal aftur á svið

Sýningar á barnaleikritinu Hættuför í Huliðsdal sem var sýnt fyrir troðfullu húsi á síðasta leikári hefjast á ný í Kúlunni þann 20. desember næstkomandi. Aðeins er boðið upp á örfáar sýningarhelgar. Áhorfendur og gagnrýnendur á öllum aldri lofuðu sýninguna sem var tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem barnasýning ársins og m.a. sögð „í senn þrælspennandi, bráðskemmtileg og hjartnæm“. Hættuför í Huliðsdal er sérstaklega ætluð ævintýraglöðum leikhúsgestum á grunnskólaaldri. Höfundur er Salka Guðmundsdóttir, leikstjóri er Harpa Arnardóttir og leikarar í verkinu eru þau Aðalbjörg Árnadóttir, Esther Talía Casey, Guðmundur Ólafsson og Hilmir Jensson. Miðasala er hafin á midi.is, leikhusid.is og í miðasölusíma...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert