Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Latex skallahettur eru vel teygjanlegar og nokkuð eðlilegar ef þær eru vel settar á. Sníða þarf hettuna til og líma niður allan hringinn. Notið skegglím, ekki vatnsuppleysanlegt. Þegar hettan er komin á er hún förðuð og púðruð og að endingu förðuð aftur með sama lit og notaður er á andlitið. Hægt er að nota hettuna aftur og aftur ef hún er tekin varlega af og geymd á gler- eða plasthaus á milli. Skallinn kostar 5.533.- Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í...

Sjá meira

Bót og betrun hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss hefur hafið æfingar á farsanum Bót og Betrun eftir enska leikskáldið Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Verkið segir frá Eric Swan sem grípur til bótasvika þegar hann missir vinnuna. Hins vegar fer svindlið úr böndunum og kemst Eric að því að stundum er auðveldara að komast á bætur en af þeim þegar boltinn er einu sinni farinn að rúlla. Bót og betrun er gamanleikur eins og þeir gerast bestir, hefðbundinn farsi með misskilningi, flækjum og pínlegum aðstæðum af öllu tagi eins og efnið ber með sér. Verkið á erindi við alla sem vilja upplifa gleði og...

Sjá meira

Nýtt verk frá höfundi Dags vonar

Á morgun, þriðjudaginn 20. janúar kl. 10, verður opinn samlestur í forsal Borgarleikhússins á nýju verki eftir Birgi Sigurðsson. Er ekki nóg að elska? er raunsæ og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem má ekki koma upp á yfirborðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir þar úrvalsliði leikara en Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk og tónlist er í höndum Björns Jörundar. Opnir samlestrar eru liður í að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Allir velkomnir og kaffi á könnunni. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum...

Sjá meira

Sviðsettir leiklestrar á nýjum verkum

Uppsprettan stendur fyrir upplestri á nýjum íslenskum verkum í Tjarnarbíói næstu þriðjudagskvöld. Leiklestrarnir eru unnir í samstarfi við Árna Kristjánsson leikstjóra. Verkin, sem eru í fullri lengd, eru afrakstur leikritunarnámskeiðs sem Árni stóð fyrir í Tjarnarbíói í haust. Fyrsta verkið sem lesið verður þriðjudaginn 20. janúar, er kvikmyndahandrit sem kallast Útgöngubann og fjallar um fjölskyldu sem lokar sig af vegna þess að faraldur herjar á landið. Höfundur er Sóley Ómarsdóttir. Leikarar eru María Pálsdóttir, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Sveinn Óskar Ásbjörnsson, Lana Íris Dungal, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Ársæll Níelsson, Arnoddur Magnússon Danks og Ástþór Ágústson. Flutningur hefst kl. 20:30 á...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Filmblood. Fljótandi gerfiblóð sem þornar ekki en heldur glansinum. Þægilegt að nota til að klára sár og meiðsli. Fæst í þremur stærðum; 100 ml. kostar 1.778.-, 500 ml. kostar 5.039.- og 1000 ml. kostar 7.410.- Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Blóðið næst af húð með vatni og sápu. Ef blóðið fer í föt er ráðlagt að leggja flíkina í bleyti og nota Biotex eða álíka þvottaefni. Síðan er flíkin þvegin í...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert